• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Siðblindar konur

Myndin tengist ekki málinu

Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

Lýsir ofbeldi á fósturheimili í Mosfellssveit

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kona sem dvaldi á fósturheimili í Mosfellssveit sem barn á áttunda áratugnum segir vistina þar hafa verið skelfilega. Hún vill að rannsóknarnefnd taki þetta fósturheimili fyrir. Guðrún Glódís lýsir kynferðisofbeldi, barsmíðum, heilaþvætti, svelti og fleiru í löngu viðtali við Ríkisútvarpið.

„Það er með ólíkindum hvernig hún fór með okkur börnin í sinni umsjá. Miskunnarlaus, gjörsamlega miskunnarlaus, og kvikindi, kvikindisleg, naut þess að kvelja okkur, naut þess,“ segir Guðrún Glódís Gunnarsdóttir, leikkona og söngkona, um reynslu sína af ofbeldi sem eigandi fósturheimilis í Mosfellssveit beitti hana þegar hún var fimm og sex ára gömul. Þetta var á árunum 1973 og 1974.

Eigandi heimilisins var þýsk kona, Waltraud Paulsen, og var það hún sem beitti þessu ofbeldi segir Guðrún Glódís. Fósturheimilið var í heimahúsi hjá Waltraud sem bjó þar ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Waltraud er fædd árið 1935 og er ennþá á lífi.

Guðrún Glódís segir að ofbeldið hafi verið af öllum gerðum. „Það var kynferðisleg misnotkun, það var svelti, það voru barsmíðar, það var heilaþvottur, af öllum toga. Þetta var svona píning og kvöl.“

Guðrún Glódís segir að hún hafi búið á heimilinu í samtals tvo mánuði, sumrin 1973 og 1974 þegar móðir hennar fór til sjós sem kokkur. Hún segir að þessir tveir mánuðir hafi haft mikil áhrif á líf hennar.

Hún segir að kynferðisofbeldið sem hún varð fyrir hafi verið ýmiss konar. Meðal annars hafi Waltraud látið hana og dreng á fósturheimilinu stunda kynferðisathafnir saman. Þá hafi Waltraud stungið fingri upp í leggöng hennar þegar hún var aðeins sex ára gömul.

Maður sem ekki vill koma undir nafni, bjó á heimilinu í mörg ár og hann segist hafa orðið fyrir barsmíðum, kynferðisofbeldi og verið notaður sem vinnuþræll. Hann hafi verið vakinn snemma á morgnana til að vinna erfiðsvinnu eins og að hlaða veggi úr hrauni og keyra sand í hjólbörum.

Maðurinn segir líka að hann hafi verið látinn þvo Waltraud þegar hún fór í bað.

Fjallað er um sögu Guðrúnar Glódísar og heimilið í Mosfellssveit í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag.

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Húsgagnamarkaðurinn ehf. gjaldþrota

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Verð á eldsneyti lækkar

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?