• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Starfs­maður leik­skóla rekinn vegna at­viks

Starfs­maður leik­skóla rekinn vegna at­viks

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Bærinn hefur óskað eftir því að rannsókn verði hafin á ný.

Í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ segir að ýmislegt bendi til þess að upplýsingaflæði hafi á þeim tíma ekki verið fullnægjandi. Markmið Akureyrarbæjar sé að tryggja með afgerandi hætti að sambærileg mál séu í framtíðinni meðhöndluð á eins skýran og faglegan hátt og unnt er.

Í fréttatilkynningu Akureyrarbæjar kemur fram að haldnir hafi verið fundir með foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Tröllaborgum. Fundina hafi setið fulltrúar bæjarins, lögreglu, barnaverndar, stjórnendur skólans og sérfræðingur um hagnýtar leiðbeiningar til barna og foreldra ef upp kemur grunur um brot á barni.

Tilgangur fundanna hafi verið að veita foreldrum upplýsingar um málið, auk þess að bjóða upp á ráðgjöf um hvernig ræða megi erfið mál við börn. Foreldrum hafi jafnframt verið leiðbeint um hvert þeir geti leitað hafi þeir áhyggjur af velferð barna sinna og hvernig koma megi á framfæri ábendingum til lögreglu.

„Sveitarfélagið mun óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til skoðunar reynist forsendur fyrir því, þannig að óvissa um atvik og niðurstöður verði sem minnst fyrir foreldra og starfsfólk.“

Akureyrarbær biðst afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Á næstu vikum verður verklag bæjarins varðandi innri ferla og skipulag rýnt og endurbætt. Markmiðið sé að bæta upplýsingaflæði, verklag og viðbrögð, og skerpa á hlutverkaskiptingu í viðkvæmum málum. Hlutaðeigandi aðilar, þar á meðal starfsfólk og foreldrar, muni koma að þeirri vinnu auk þess sem leitað verði ráðgjafar sérfræðinga eftir þörfum. Einnig sé lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum.

Öryggi og velferð allra barna skuli ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt sé að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir.

„Akureyrarbær vill taka það skýrt fram að hann ber fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til,“ segir í lok tilkynningar.

Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ og í fleiri leikskólum

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Húsgagnamarkaðurinn ehf. gjaldþrota

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Þjófar sendir úr landi

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Verð á eldsneyti lækkar

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?