• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Krafa um sanngjarnari vinnumarkað og réttlátari heim

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. apríl 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Fjármálaöflin munu reyna að nýta þessa kreppu 

Vikan hefur einkum verið nýtt í að bregðast við tillögum stjórnvalda og hafa áhrif á hvernig frumvörpin fara í gegnum þingið og að vinna stefnumótun til framtíðar. Til að veita okkur innblástur í þá vinnu buðum við upp á netfundi með heimsklassa fyrirlesurum sem hugsa í stærsta mögulega samhenginu. Sharan Burrow, framkvæmdastjóri alþjóða verkalýðshreyfingarinnar (ITUC), og John Evans fyrrum fulltrúi vinnandi fólks í ráðgjöf við OECD og yfirhagfræðingur ITUC riðu á vaðið og fjölluðu um sanngjörn umskipti, hvernig nauðsynlegt sé að verja tekjur til að knýja hagkerfið áfram og hvaða skilyrði eigi að setja fyrir stuðningi við fyrirtæki.
Yanis Varoufakis hagfræðingur og fyrrum fjármálaráðherra Grikkja, ræddi meðal annars um hvernig hægt sé að tryggja að arður fyrirtækja fari til fólksins og hann vildi dusta rykið af upprunalegu hlutverki Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem var að vinna fyrir fólk en ekki fjármagn. Adam Tooze, prófessor í sagnfræði við Columbia háskóla, fjallaði svo um þróun alþjóðlega efnahagskerfisins og þróun seðlabanka sem nú dæla fjármagni út í hagkerfin til að halda þeim gangandi.
Rauði þráðurinn í þessum erindum var að hagkerfi heimsins mun taka miklum breytingum í kjölfar kreppunnar og enduruppbyggingin verði að felast í sjálfbærni, jafnrétti og jöfnuði og réttlátri skiptingu gæðanna. Ferðir á milli landa og heimshluta munu taka breytingum, virðiskeðjur þurfa að vera styttri, framleiðsla matvæla tryggð og vinda þarf hressilega ofan af þeirri þróun misskiptingar sem hefur fengið að þrífast í skjóli núverandi efnahagskerfis. Fjármálaöflin munu reyna að nýta þessa kreppu til að skara eld að eigin köku í gegnum samþjöppun eigna og auðs. Hreyfing vinnandi fólks verður því að vera tilbúin með sínar kröfur um sanngjarnari vinnumarkað og réttlátari heim. Sú vinna er hafin hjá ASÍ í sterku alþjóðlegu samstarfi.
Góða helgi, Drífa

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?