• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Garðabær tekur á móti 180 flóttamönnum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum samkvæmt samningi sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu í dag. Þetta er ellefti samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks síðan í nóvember síðastliðinn. Heildarfjöldi flóttafólks skv. samningunum nálgast 3.200.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Markmiðið er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að.

Aldrei hafa fleiri komið til landsins á flótta en nú í ár og í fyrra. Frá áramótum hafa 1.730 manns sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, þar af nærri 350 börn. Margir umsækjendur koma frá Úkraínu en hingað leitar einnig fólk víða annars staðar frá í leit að alþjóðlegri vernd, svo sem frá Venesúela, Palestínu og Sýrlandi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fagnar því að Garðabær bætist í stækkandi hóp sveitarfélaga sem undirritað hafa samning um móttöku flóttafólks. „Það er gleðiefni að fá Garðabæ inn í þetta þýðingarmikla verkefni. Ég óska bæjarbúum öllum til hamingju og nýjum íbúum farsældar.

„Við viljum taka vel á móti flóttafólki og okkur hefur gengið vel í Garðabæ að halda utan um hópinn sem svo sannarlega auðgar samfélagið okkar. Það er mikilvægt að móttaka flóttafólks sé samræmd og þessi samningur rammar vel inn þetta mikilvæga verkefn ,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar. „Við höfum tekið á móti fjölmörgum börnum á flótta sem er mjög viðkvæmur hópur sem þarf að hlúa vel að og þörf þeirra fyrir þjónustu er mikil. Við teljum nauðsynlegt að sveitarfélög vinni nánar með ríkinu og staðið sé vel að þeirri umgjörð.“

Ítarefni: Vefur um móttöku flóttafólks

 
 
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?