Ekki nein siðferðiskennd eða vilji hjá stjórnum lífeyrissjóða
“Svik og prettir virðist vera nokkurs konar þjóðaríþrótt á Íslandi og spillingin hér á landi er mun meiri en mig nokkurn tíma grunaði“, segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR sem var gestur Ernu Ýrar Öldudóttur í síðdegisútvarpinu í dag hjá útvarpi Sögu.
Ragnar ræddi í þættinum um málefni lífeyrissjóðanna sem hann hefur verið mjög gagnrýninn á í gegnum tíðina, sér í lagi fjárfestingar þeirra sem hann segir oft vera á hæpnum forsendum. Hann segir að þegar upp komi grunur um eitthvað misjafnt innan lífeyrissjóðanna sem þarfnist nánari skoðunar við ríki skyndilega mikil þöggun
” það er ekkert gert, það virðist ekki vera nein siðferðiskennd eða vilji hjá stjórnum lífeyrissjóða til þess að fara í, fletta ofan af og rannsaka eða láta reyna á fyrir dómstólum skaðabóta eða refismál almennt, það er bara enginn vilji til þess” segir Ragnar Þór.
Ragnar Þór nefnir dæmi máli sínu til stuðnings ”hvað hafa lífeyrissjóðirnir farið í mörg skaðabóta eða endurkröfumál frá árinu 2008? , nefnilega engin, ekki eitt einasta“,, segir Ragnar.