Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur birt framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar sem verða haldnar þann 25.september. Flokkurinn hefur stillt upp á lista í fjórum kjördæmum eða í Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmi auk Reykjavíkurkjördæmis norður.
Hér að neðan má sjá tíu efstu frambjóðendur í hverju kjördæmunum fyrir sig en framboðslistar Reykjavíkurkjördæmis suður og Suðvesturkjördæmis verða birtir í næstu viku, að því er fram kemur í tilkynningu frá Frjálslynda lýðræðisflokknum. Guðmundur Franklín Jónsson, hagfræðingur og viðskiptafræðingur leiðir listann í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Reykjavíkurkjördæmi norður
Guðmundur Franklín Jónsson, hagfræðingur
Auðunn Björn Lárusson, leiðsögumaður
Örn Helgason, framkvæmdastjóri
Andrés Zoran Ivanovic, ferðaskipuleggjandi
Íris Lilliendahl, löggiltur skjalaþýðandi
Haraldur Kristján Ólason, bílstjóri
Sverrir Vilhelm Bernhöft, framkvæmdastjóri
Þröstur Árnason, tæknimaður
Óskar Örn Adolfsson, öryrki
Dagmar Valdimarsdóttir, öryrki
Suðurkjördæmi
Magnús Ívar Guðbergsson, skipstjóri
Inga Jóna Traustadóttir, öryrki
Birkir Pétursson, bílstjóri
Heimir Ólafsson, bóndi
Alda Björk Ólafsdóttir, forstjóri
Þórarinn Þorláksson, verkamaður
Steinar Smári Guðbergsson, framkvæmdarstjóri
Þórarinn Baldursson, vélamaður
Víðir Sigurðsson, smiður
Ingibjörg Fanney Pálsdóttir, matsveinn
Norðausturkjördæmi
Björgvin Egill Vídalín Arngrímsson, eldri borgari
Hilmar Daníel Valgeirsson, framkvæmdarstjóri
Halina Kravtchouk, yfirþerna
Gestur Helgi Friðjónsson, öryrki
Valgeir Sigurðsson, veitingamaður
Óskar Steingrímsson, rekstrarstjóri
Fannar Eyfjörð Skjaldarson, bílstjóri
Höskuldur Geir Erlingsson, múrarameistari
Vilhjálmur Ragnarsson, vélvirkjameistari
Edda Lára Guðgeirsdóttir, fótaaðgerðarfræðingur
Norðvesturkjördæmi
Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir, verslunamaður
Jóhann Bragason, rafvirki
Hafþór Magnússon, sjómaður
Jón Sigurðsson, smiður
Reynir Sigurður Gunnlaugsson, iðnaðarmaður
Karl Löve, öryrki
Ásta Björg Tómasdóttir, öryrki
Sigurður Þorri Sigurðsson, öryrki
Ingólfur Daníel Sigurðsson, tæknimaður
Jóhanna María Kristjánsdóttir, eldri borgari