• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 5. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Enn ein stýrivaxtahækkunin tilkynnt

Yfirlýsing peningastefnunefndar - Verðbólga jókst í júlí og mældist 9,9%

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. ágúst 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 5,5%.

Peningastefnunefnd

Samkvæmt uppfærðri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í ágústhefti Peningamála eru horfur á tæplega 6% hagvexti í ár sem er 1,3 prósentum meiri vöxtur en spáð var í maí. Stafar það einkum af þróttmeiri einkaneyslu og hraðari bata í ferðaþjónustu. Störfum heldur áfram að fjölga og atvinnuleysi að minnka og meiri spenna hefur myndast í þjóðarbúinu en áætlað var í maí.

Verðbólguhorfur hafa áfram versnað. Verðbólga jókst í júlí og mældist 9,9%. Gert er ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok ársins í tæplega 11%. Verri verðbólguhorfur endurspegla kröftugri umsvif í þjóðarbúskapnum en gert var ráð fyrir í maí og þrálátari hækkanir á húsnæðismarkaði auk meiri alþjóðlegrar verðbólgu. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað enn frekar á flesta mælikvarða.

Peningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.

Vextir verða því sem hér segir:

1. Daglán 7,25%
2. Lán gegn veði til 7 daga 6,25%
3. Innlán bundin í 7 daga 5,50%
4. Viðskiptareikningar 5,25%

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    50 deilingar
    Share 36 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?