• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vel heppnað filippseyskt matar- og skemmtikvöld hjá starfsmannafélagi Útgerðarfélags Akureyringa

Hátt í þrjátíu starfsmenn ÚA rekja ættir sínar til Filippseyja / myndir samherji.is

Vel heppnað filippseyskt matar- og skemmtikvöld hjá starfsmannafélagi Útgerðarfélags Akureyringa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. september 2024
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0

Starfsfólk Útgerðarfélags Akureyringa og gestir skemmtu sér konunglega sl. laugardagskvöld í matsal félagsins. Starfsmannafélag Útgerðarfélags Akureyringa ( STÚA) efndi til filippseysks matar- og skemmtikvölds en hjá ÚA starfa nærri ‏þrjátíu manns sem rekja uppruna sinn til Filippseyja.

Bethsaida Rún Arnarson hefur starfað hjá ÚA í um þrjátíu ár og er trúnaðarmaður starfsfólks sem er í Einingu-Iðju, auk þess sem hún er í stjórn stéttarfélagsins. Bethsaida segir að undirbúningur matar- og skemmtikvöldsins hafi gengið sérlega vel. Fjallað var um veisluna á vef Samherja.

Mikill undirbúningur

„Við hjálpuðumst öll að og skiptum með okkur verkum. Undirbúningurinn hefur staðið yfir í nokkrar vikur, svo sem að æfa þjóðdansa, skipuleggja matarhlaðborðið og fleira. Við hófumst handa við að skreyta salinn eftir vinnu á föstudaginn og markmiðið var að gera hann sem glæsilegastan, þannig að gestirnir hefðu það á tilfinningunni að vera komnir til Filippseyja. Snemma á laugardagsmorgninum var svo byrjað á eldamennskunni og öðrum undirbúningi fyrir veisluna. Þetta tókst allt saman vel og allt var orðið klárt þegar fyrstu gestirnir komu.“

Gestrisni annáluð

Bethsaida Rún Arnarson

Filippseyjar eru annálaðar fyrir ríka matarmenningu, með áhrifum frá öllum heimshornum. Hvert hérað er með sinn stíl í matargerð og gestrisni íbúanna er annáluð. Hrísgrjón eru algeng í matargerð sem grunnur, mikið er um fisk, kjöt og baunir að ótöldum miklu úrvali af alls kyns kryddtegundum.

Íbúar Filippseyja eru rúmlega 90 milljónir og eyjarnar eru samtals 7.100 en 880 þeirra eru í byggð.

Þjóðlegur matur og dans

„Við buðum gesti velkomna í anddyri matsalarins klædd þjóðbúningum, sem eru mismunandi eftir sýslum. Við höfðum líka æft þjóðdansa frá nokkrum héruðum, sem var mjög skemmtilegt að sýna. Við vorum með samtals tíu mismunandi rétti á hlaðborðinu og fimm eftirrétti. Við erum öll alsæl með viðtökurnar, margir gestir þökkuðu okkur fyrir góðan mat og skemmtiatriði. Aðstaðan í eldhúsi ÚA er frábær, þannig að allur undirbúningur gekk vel og kvöldið var stanslaus gleði.“

Hvað vita Íslendingar helst um Filippseyjar ?

Þjóðdansarnir vöktu mikla hrifningu gesta

„ Í sannleika sagt vita þeir almennt ekki mikið en ég er viss um að einhverjir fara að kynna sér Filippseyjar eftir þetta matar- og skemmtikvöld. Við sýndum líka myndbönd, þar sem nokkrir vinsælir ferðamannastaðir voru kynntir og ég vil bara hvetja sem flesta Íslendinga til að kynna sér Filippseyjar.“

Virkilega ánægjuleg kvöldstund

Óskar Ægir Benediktsson formaður STÚA segir að matar- og skemmtikvöldið hafi tekist vonum framar.

„Þetta var virkilega ánægjuleg kvöldstund. Ég átti þess kost að fylgjast með undirbúningnum og hve samheldnin og gestrisnin var einstök. Svona þjóðarkvöld þjappa starfsfólkinu enn betur saman, sem er mikils virði. Ég held að allir gestir kvöldsins hafi fundir vel fyrir hinni annáluðu gestrisni sem ríkir á Filippseyjum.“

 

Fleiri myndir frá matar- og skemmtikvöldinu heru hérna fyrir neðan:

Allir gestir voru boðnir velkomnir

 

Hlaðborðið var glæsilegt
Allir skemmtu sér konunglega
Á góðum skemmtikvöldum er nauðsynlegt að taka myndir og varðveita skemmtilegt kvöld
Matsalur ÚA var þétt setinn
Kjötið skorið á diskana
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?