Auðlindir hafsins í kringum Ísland eru ekki eign útgerðarinnar – sameign þjóðarinnar
Miðstjórn ASÍ harmar nýlegar uppsagnir í sjávarútvegi og telur ótækt að útgerðin beiti starfsfólki sínu fyrir sig í pólitískum slag um veiðigjöld.
Auðlindir hafsins í kringum Ísland eru ekki séreign útgerðarinnar. Útgerðin hefur hins vegar um langt skeið fengið aðgang að þeim án eðlilegs endurgjalds til eigenda hennar, þjóðarinnar. Íslenskur sjávarútvegur hefur verið vel rekinn undanfarinn áratug, skilað afkomu og byggt upp eigið fé sem hleypur á hundruðum milljarða.
Miðstjórn ASÍ telur óboðlegt að útgerðin beiti uppsögnum starfsfólks sem vopni í pólitískum slag um veiðigjöld. Nýting sameiginlegrar auðlindar snýst ekki einungis um hag eigenda útgerðafyrirtækja heldur um samfélagslega ábyrgð, hag nærsamfélags og starfsfólks.
Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

