Suðausturland
Norðan hvassviðri eða stormur (Appelsínugult ástand) – 24 okt. kl. 15:30 – 25 okt. kl. 12:00
Norðan 18-25 m/s og hviður jafnvel yfir 50 m/s, hvassast austantil. Sums staðar sandfok eða grjótfok og lélegt skyggni. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum.
Strandir og Norðurland vestra
Hvöss norðanátt og snjókoma (Gult ástand) – 24 okt. kl. 10:30 – 23:00
Norðan 13-20 m/s og snjókoma, nánast samfelld A-til en þéttur éljagangur síðdegis og í kvöld. Skafrenningur, takmarkað skyggni og líkur á versnandi akstursskilyrðum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Norðurland eystra
Hvöss norðanátt og snjókoma (Gult ástand) – 24 okt. kl. 11:00 – 20:00
Norðan 13-18 m/s og snjókoma en þéttur éljagangur síðdegis. Skafrenningur, takmarkað skyggni og líkur á versnandi akstursskilyrðum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Veðurhorfur á landinu
Norðlæg átt víða 10-18 m/s en 18-25 SA-lands. Úrkomulítið á sunnanverðu landinu annars víða él. Frost víða 1 til 7 stig.
Hægt minnkandi norðanátt og él á morgun, víða 5-13 annað kvöld en heldur hvassara suðaustanlands og á Austfjörðum.
Spá gerð: 24.10.2019 18:32. Gildir til: 26.10.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag (fyrsti vetrardagur):
Hæg norðlæg eða breytileg átt, en norðan 8-13 við SA-ströndina framan af. Víða léttskýjað, en dálítil él N- og A lands í fyrstu. Frost 0-9 stig, kaldast inn til landsins.
Á sunnudag:
Norðvestlæg átt, 3-10 m/s og víða bjartviðri en þykknar upp vestantil þegar líður á daginn. Frost 0 til 6 stig en víða frostlaust við ströndina.
Á mánudag:
Hægt vaxandi vestanátt, 5-13 m/s síðdegis. Allvíða bjartviðri, en skýjað við vesturströndina. Hlýnar lítið eitt og hiti 0 til 4 stig, en áfram vægt frost norðan og austanlands.
Á þriðjudag:
Vestanátt með lítilsháttar slyddu eða rigningu um landið vestanvert, en él við norðurströndina um kvöldið, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðlæga átt með dálitlum élum N- og A-til en bjartviðri syðra. Kólnandi veður.