• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 26. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögfræðingur þáði mútur

Embætti héraðssaksóknara framkvæmdi húsleitir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. október 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Embætti héraðssaksóknara framkvæmdi húsleitir og aðrar aðgerðir til þess að afla gagna og upplýsinga vegna ætlaðra brota tveggja fyrirtækja á markaði fyrir úrgangsþjónustu á samkeppnislögum.

Rannsóknin beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins.

Samhliða rannsókn embættis héraðssaksóknara á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á banni 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 við samráði keppinauta um m.a. gerð tilboða í útboðum og skiptingu markaða.

Framangreindar aðgerðir embættis héraðssaksóknara voru framkvæmdar í samvinnu við Samkeppniseftirlitið, en ákvæði 42. gr. samkeppnislaga heimila samvinnu og miðlun upplýsinga milli embættis héraðssaksóknara og Samkeppniseftirlitsins.

Samkeppniseftirlitið veitir ekki frekari upplýsingar á þessu stigi.

Bakgrunnsupplýsingar:

Samkvæmt 41. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005 varðar það starfsmenn fyrirtækja sektum eða fangelsi allt að sex árum ef þeir framkvæma, hvetja til eða láta framkvæma samráð milli keppinauta. Sæta brotin rannsókn lögreglu að undangenginni rannsókn Samkeppniseftirlitsins.

Samkvæmt 37. gr. samkeppnislaga varðar það fyrirtæki stjórnvaldssektum að brjóta gegn samkeppnislögum, þ.á m. banni 10. gr. við ólögmætu samráði.

Varði meint brot á samkeppnislögum bæði stjórnvaldssektum gagnvart fyrirtækjum og einstaklingum refsingu, metur Samkeppniseftirlitið með tilliti til grófleika brots og réttarvörslusjónarmiða hvort sá hluti málsins sem varðar refsiábyrgð einstaklings skuli kærður til lögreglu, sbr. 42. gr. samkeppnislaga.

Samkvæmt 4. og 5. mgr. 42. gr. samkeppnislaga er Samkeppniseftirlitinu heimilt að láta lögreglu og ákæruvaldi í té upplýsingar og gögn og taka þátt í aðgerðum lögreglu sem varða rannsókn umræddra brota. Jafnframt er lögreglu og ákæruvaldi heimilt að láta Samkeppniseftirlitinu í té upplýsingar og gögn sem þau hafa aflað og tengjast þeim brotum á lögunum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líkamsárás í Túnahverfi og Hamas-samtökin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bankarnir vilja peningana þína

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Viðvörun: Vindhviður 35 m/s og yfir 45 m/s

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?