Fiskifræðingur segir það vera ömurlegt að heyra Sigurð Inga Jóhannsson hæla sér af lögum sem hann var að smíða og áttu að gefa sægreifunum rétt á 23 ára nýtingu með framlengingu
,,Ömurlegt að heyra Sigurð Inga hæla sér af lögum sem hann var að smíða og áttu að gefa sægreifunum rétt á 23 ára nýtingu með framlengingu. Hélt hann að réttlæting væri í því? Hið eina rétta er að leggja niður kvótakerfið og taka upp sóknarmark, sem allir geta komið að og reist þannig við sjávarþorpin. Og taka þann kaleik frá Hafró að þurfa að telja eða giska á fjölda fiska í sjónum.“ Segir Jón Kristjánsson fiskifræðingur um yfirlýsingar Sigurðar Inga í vikunni varðandi kvótakerfið.
Sigurður Ingi Jóhannsson ræddi málið í ræðu sinni á haustfundi miðstjórnar Framsóknar á Akureyri. Þar rifjaði hann upp þegar hann var sjávarútvegsráðherra á árunum 2014 til 2015 hefði hann lagt í mikla vinnu við gerð frumvarps þar sem lagt var til að sjávarútvegsfyrirtæki gætu gert samning um kvóta til ákveðins tíma, 23 ára.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, sagði að það truflaði hann ekki persónulega að einhverjir hagnist á kvótakerfinu. Að hans mati kalli Samherjamálið ekki á nýja stjórnarskrá eða grundvallarbreytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, sem hann telur vel heppnað í öllum aðalatriðum. Þetta kom fram í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/17/17-ara-og-keypti-ser-bat-og-kominn-i-blomlega-utgerd/