Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var gestur í Víglínunni og þar var rætt um sjávarútvegsmál og kvótakerfið ásamt auðlindargjöld. Sigmundur sagðist vilja minnka þakið á eignarheimildum fyrirtækja, þannig að það væru ekki risafyrirtæki sem ættu allan kvótann. Æskilegra væri að sjávarútvegsfyrirtækin væru fleiri og smærri. Þá benti hann á að það sama væri að fara að gerast varðandi orkuna, fáein fyrirtæki ætluðu að sölsa undir sig alla orku þjóðarinnar. Það væri í raun það sama og gerst hefur nú þegar í sjávarútvegnum.
,,Að verja auðlindir er ekki spurning um að verja hina stóru, það er þvert á móti eins og við sjáum svo mörg dæmi um, um allan heim. Að þar sem yfirráð yfir auðlindum færast frá lýðræðislegum vilja þjóðanna sjálfra, þar sem er skorið á lýðræðislegan vilja hennar, þar fara hlutirnir illa.“ Þá benti hann á að ESB réri að því öllum árum að koma slíkum andlýðræðislegum kerfum á í aðildarlöndum sínum.
Miðflokkurinn vill sterkt auðindarákvæði í stjórnarskránna
Sigmundur Davíð sagðist vilja sterkt auðindarákvæði í stjórnarskránna, í öðru lagi væri tilefni til að breyta kerfinu þannig að samþjöppun héldi ekki áfram þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki gætu ekki keppt við þau risa stóru.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem einnig var gestur þáttarins benti á að það væri furðulegt að íslensk fyrirtæki væru tilbúin til að greiða margfalt meira verð fyrir afnot í auðlindagjald af fiskikvóta erlendis miðað við verðið á Íslandi. Og að (fisk) markaðurinn ætti að fá að ráða verðinu og ekkert annað, því allt annað væri rugl.
,,Er réttlátt að fyrirtæki sem fjárfestir í Mogganum, fái lægra auðlindargjald í staðinn?“ Spurði hún.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/22/fylgi-sjalfstaedisflokksins-hrunid-rikisstjornin-fallin-og-midflokkurinn-nanast-staersti-flokkurinn/