• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Innflytjendur 16,3% íbúa landsins

905 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2021

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. nóvember 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Innflytjendur á Íslandi voru 61.148 eða 16,3% mannfjöldans þann 1. janúar 2022. Innflytjendum heldur áfram að fjölga og voru þeir 15,5% landsmanna (57.126) í fyrra.

Frá árinu 2012 hefur hlutfallið farið úr 8,0% mannfjöldans upp í 16,3%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, voru 6.117 í byrjun árs 2021 en 6.575 1. janúar síðastliðinn. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 18% af mannfjöldanum og hafði það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega á milli ára og voru 7,2% mannfjöldans.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Pólverjar fjölmennastir
Eins og síðustu ár reyndust Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Innflytjendur frá Póllandi voru 20.896 eða 34,2% allra innflytjenda þann 1. janúar síðastliðinn. Þar á eftir komu einstaklingar frá Litháen (5,6%) og Rúmeníu (4,1%). Pólskir karlar voru 35,8% allra karlkyns innflytjenda eða 12.008 af 33.557. Litháískir karlar voru næst fjölmennastir (6,2%) og síðan komu karlar með uppruna frá Rúmeníu (5,1%). Pólskar konur voru 32,2% kvenkyns innflytjenda, næst á eftir þeim komu konur frá Filippseyjum (5,4%) og þá konur frá Litháen (4,7%).

28% íbúa á Suðurnesjum innflytjendur
Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 43.923 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 64,9% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 28% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst var hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 22,3% mannfjöldans voru innflytjendur og börn þeirra. Lægst var hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar voru 10,1% mannfjöldans innflytjendur og börn þeirra.

905 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2021
Árið 2021 fengu 905 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og var það mikil fjölgun frá fyrra ári þegar 395 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 905 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir áður verið með pólskt ríkisfang eða 190 og næstflestir verið með ríkisfang frá Víetnam (87). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við árið 2021 þegar 506 konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 399 karlar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    463 deilingar
    Share 185 Tweet 116
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?