• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fiskeldi að Laxamýri við Húsavík

Börnum sem alast upp í fátækt í fjölgar þriðja árið í röð

Græðgi fyrirtækja frumorsök lífskjarakreppu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Raunlaun í Evrópusambandinu (ESB) halda áfram að lækka þrátt fyrir að hagnaður fyrirtækja hafi almennt verið umfram verðbólgu það sem af er þessu ári. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Evrópusambands verkalýðsfélaga (ETUC).  ASÍ fjallaði um málið. 

Raunlaun lækka á meðan raunhagnaður fyrirtækja eykst í níu aðildarríkjum ESB, þar á meðal Þýskalandi, Frakklandi og Ítalíu. Í 10 aðildarríkjum til viðbótar eru aukning raunhagnaðar fyrirtækja meiri en hækkun launa.

Mest er aukning raunhagnaðar fyrirtækja í Slóvakíu (+8%) og Rúmeníu (+7%), þar sem kaupmáttur launa hefur dregist saman. Mest lækkun kaupmáttar launa mælist í Tékklandi (-5%) og Ítalíu (-2%), þar sem hagnaður hefur aukist að raunvirði.

ETUC birti greininguna fyrir kynningu á stefnuskrá sinni sem ber yfirskriftina „Sanngjarnan samning fyrir launafólk“ og sambandið birtir vegna kosninga til Evrópuþingsins sem fram fara í júní á næsta ári.  

Tölurnar sýna hvernig vinnandi fólki er enn gert að bera byrðar kreppu af völdum verðbólgu sem fyrst og fremst stafar af því að fyrirtæki notfæra sér truflanir í aðfangakeðjum til að hækka verð og auka þannig hagnað sinn.

Hærri arðgreiðslur, aukin fátækt  

Hagnaðarhlutdeild hefur að meðaltali aukist um 4% í Evrópusambandinu frá upphafi COVID-heimsfaraldursins en arðgreiðslur til hluthafa fyrirtækja hækka allt að 13 sinnum hraðar.

Á sama tíma hefur börnum sem alast upp í fátækt í Evrópusambandinu fjölgað þriðja árið í röð þar sem verð á helstu matvælum heldur áfram að hækka allt að sjö sinnum hraðar en laun.  

Í kosningastefnuskrá ETUC eru stjórnmálamenn hvattir til að styðja eftirfarandi stefnumál: 

  • Hvalrekaskatta á umframhagnaðinn sem hefur ýtt undir verðbólgu.  
  • Endurskoðun á tilskipunum um opinber innkaup sem gerir aðgengi fyrirtækja að opinberu fjármagni háð því að réttur til kjarasamninga sé virtur.  
  • Metnaðarfulla innleiðingu á tilskipun um viðunandi lágmarkslaun á landsvísu, sem miðar að 80% þekju kjarasamninga í hverju aðildarríki.  

Aukin misskipting færir öfgamönnum sóknarfæri 

Esther Lynch, framkvæmdastjóri ETUC, segir mikilvægt að horfið verði frá þeirri stefnu að leggja sífellt auknar byrðar á launafólk og varar við pólitískum afleiðingum áframhaldandi aðgerðaleysis.  

„Frá heimsfaraldrinum hafa tekjur launafólks í Evrópu dregist saman þrátt fyrir að hagnaður fyrirtækja hafi aukist. Forstjórar og hluthafar hafa orðið ríkari á meðan fólk sem vinnur langan vinnudag í erfiðum störfum berst við að brauðfæða fjölskyldur sínar og hita heimili sín. Þrátt fyrir það hafa margir stjórnmálamenn látið vinnandi fólk taka á sig allar byrðar þessara lífskjarakreppu.   

Evrópukosningarnar verða að marka þáttaskil í þessu efni. Það er kominn tími á stefnu sem tekur á frumorsök  þessarar kreppu – græðgi fyrirtækja – og skilar sanngjörnum samningi fyrir vinnandi fólk. Við skorum á lýðræðislega evrópska stjórnmálaflokka að tryggja að öfgahægrimenn fái ekki tækifæri til að nýta sér vaxandi reiði í röðum almennings vegna misskiptingarinnar. Eina leiðin til þess er að bjóða upp á raunverulegar lausnir á lífskjarakreppunni og byggja upp Evrópu sem byggir á frábærum störfum og góðum lífskjörum fyrir alla.“ 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?