• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Loðnu að finna á stóru svæði

Loðnu að finna á stóru svæði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. janúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Loðnumæling Hafrannsóknastofnunar sem staðið hefur yfir frá í upphafi síðustu viku er nú langt komin. Einungis er eftir að fara yfir takmarkað svæði út af Vestfjörðum sem rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir eru að sinna en mælingum veiðiskipanna Heimaeyjar, Polar Ammassak og Barða er lokið fyrir austan land (mynd 1).

 

Mynd 1. Yfirferð skipa í loðnumælingum dagana 19.-25. janúar 2026 (lifandi staðsetning hér).

Þótt mælingum sé ekki lokið vill Hafrannsóknastofnun greina lítillega frá niðurstöðum sem varða ástand loðnunnar og dreifingu. Vísindamenn stofnunarinnar munu svo á næstu dögum yfirfara gögn, meta stærð veiðistofnsins, óvissu í mælingunum og afrán ásamt því að ákvarða ráðgjöf fyrir yfirstandandi vertíð. Sú ráðgjöf mun byggja bæði á þessari mælingu (vegur 2/3) og mælingum á stærð veiðstofnsins haustið 2025 (1/3). Það má búast við ráðgjöfinni í seinni part þessarar viku.
Loðnan var dreifð yfir stóran hluta yfirferðasvæðisins (mynd 2). Mesti þéttleikinn var í fremsta hluta göngunnar fyrir austan land og úti af Húnaflóa. Langstærsti hluti loðnunnar fyrir norðan og austan land var kynþroska og mun því hrygna á næstu vikum. Hrognaprósenta loðnunnar var á bilinu 6-8% víðast hvar.

Mynd 2. Leiðarlínur fimm skipa í loðnumælingu í mismunandi litum dagana 19.-25. janúar 2026 og þéttleiki loðnu samkvæmt bergmálsmælingum (línur hornrétt á leiðarlínur).

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hvessir og frost 5 til 15 stig

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Líkamsárásir, fíkniefni, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?