• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hellisheiði og Þrengsli lokað – suðaustan óveður

Veður og færð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Þegar þetta er skrifað er djúp lægð (um 950 mb) komin inn á Grænlandshaf og sendir hún óveður yfir landið í dag. Nú er vaxandi suðaustanátt, stormur eða rok þegar kemur fram á daginn með snjókomu í fyrstu, síðar talsverðri rigningu eða slyddu á láglendi. Hlýnar í veðri, hiti 1 til 6 stig síðdegis. Hvessir einnig um landið norðaustanvert uppúr hádegi og þar má búast við skafrenningi og dálítilli snjókomu, hlýnar upp að frostmarki á þeim slóðum.
Þegar suðaustan óveðrið hefur lokið sér af snýst í allhvassa sunnanátt með skúrum eða slydduéljum. Þessi snúningur gerist á mismunandi tímum á mismunandi stöðum á landinu, tökum dæmi um tímasetningar: á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 16 og 17, á Egilsstöðum milli kl. 20 og 21. Á morgun (laugardag) má gera ráð fyrir sunnan og suðvestan strekkingi með éljum nokkuð víða, en bjartviðri norðaustantil á landinu. Það kólnar og hiti kringum frostmark á morgun.

Á sunnudag róast veðrið síðan meira, þá er útlit fyrir suðlæga golu eða kalda með éljum, gæti orðið fallegt vetrarveður milli éljanna. Á Norður- og Austurlandi er ekki gert ráð fyrir úrkomu. Frystir um mestallt land.

Veðurhorfur á landinu

Vaxandi suðaustanátt, 18-28 m/s í dag með snjókomu og síðar talsverðri slyddu eða rigningu. Hlýnar í veðri, hiti 1 til 6 stig síðdegis. Skafrenningur og dálítil snjókoma um landið norðaustanvert og hiti kringum frostmark. Allhvöss sunnanátt í kvöld með skúrum eða slydduéljum. Sunnan og suðvestan 8-15 á morgun og él, en bjartviðri norðaustantil. Hiti kringum frostmark.

Færð og ástand vega

Kl. 7:24 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Gular- og appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar er í gildi um allt land föstudaginn 25. febrúar. Búast má við að færð spillist og vegir geta lokast. Lítið sem ekkert ferðaveður verður á meðan viðvörunin er í gildi. #færðin

Vetrarfærð er á landinu en nánari upplýsingar um færð er að finna á færðarkorti Vegagerðarinnar sem sjá má hér: vegagerdin.is/ferdaupplysing… #færðin

Höfuðborgarsvæðið

Kl. 8:04 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Greiðfært er að mestu og víða eru varasamar holur og eru vegfarendur hvattir til að aka með gát. #færðin

Suðvesturland

Kl. 7:17 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Búið er að loka Hellisheiði, Þrengslum og Sandskeiði. Bætir stöðugt í vind. Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum en eitthvað er um snjóþekju. #færðin

Krýsuvíkurvegur

Kl. 7:12 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Vegurinn er ófær. #færðin

Suðurstrandarvegur

Kl. 8:59 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Hálka og hálkublettir eru á veginum og mjög hvasst. #færðin

Hellisheiði

Kl. 7:11 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Búið er að loka veginum #færðin

Þrengsli

Kl. 7:07 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Búið er að loka veginum. #færðin

VesturlandVesturland

Kl. 9:00 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Fróðarárheiði er lokuð. Ófært er á yfir Draganum en Flughálka á Ferstikluhálsi og í Álftafirði. Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum. #færðin

VestfirðirVestfirðir

Kl. 6:50 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum og eitthvað um éljagang. #færðin

Dynjandisheiði

Kl. 6:50 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Vegurinn er lokaður og verður hann ekki mokaður í dag vegna veðurútlits. #færðin

NorðurlandNorðurland

Kl. 8:47 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Hálka eða hálkublettir eru á flest öllum leiðum. #færðin

Víkurskarð

Kl. 6:51 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Vegurinn er lokaður. #færðin

NorðausturlandNorðausturland

Kl. 9:17 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Hálka eða hálkublettir er á flestum leiðum og eitthvað um skafrenning. Þæfingsfærð er á Hólasandi og Hlíðarvegi (917). #færðin

AusturlandAusturland

Kl. 6:54 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum. Þungfært er í Skriðdal. #færðin

SuðausturlandSuðausturland

Skeiðarársandur

Kl. 7:23 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Vegna skemmda á slitlagi er hámarkshraði færður niður í 70 km/klst. #færðin

SuðurlandSuðurland

Kl. 8:58 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Þæfingsfærð er a Lyngdalsheiði, Greiðfært er frá Selfossi að Eyjafjöllum. Hálka eða hálkublettir víða og eitthvað um snjóþekju í Flóanum. Versnandi veður. #færðin

Undir Eyjafjöllum

Kl. 7:24 | 25. febrúar 2022Twitter@Vegagerdin

Brúin yfir Kelduál á Sandhólmavegi (247) er skemmd og er þar 5 tonna ásþungi. #færðin

Umræða
Share11Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?