• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Verðbólga eykst stöðugt, er 6,2% og hækkar

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,2%

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Verðbólga á ársgrundvelli mælist nú 6,2% og hækkar um 0,5 prósentustig frá því í janúar, samkvæmt tölum Hagstofunnar

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í febrúar 2022, er 523,9 stig og hækkar um 1,16% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 440,3 stig og hækkar um 1,26% frá janúar 2022.

Verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 7,5% (áhrif á vísitöluna 0,47%), kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,2% (0,22%), verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 0,8% (0,11%) og bensín og olíur hækkuðu um 3,6% (0,11%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 9,7% (-0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,2%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2022, sem er 523,9 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.344 stig fyrir apríl 2022.

Í útreikningum á árgreiðsluhluta reiknaðrar húsaleigu (COICOP 042) verður nú og eftirleiðis notað nafnvirði kaupsamninga í stað núvirðis. Breytingin er afleiðing af breyttri skráningu á upplýsingum úr kaupsamningum eins og greint var frá í frétt Þjóðskrár Íslands þann 21. desember 2021.

Óverulegur munur er á nafnvirði og núvirði þar sem uppgjör á milli kaupenda og seljenda fasteigna tekur skamman tíma. Mismunur kaupverðs og núvirðis hefur ekki áhrif til hækkunar eða lækkunar reiknaðrar húsaleigu í vísitölu neysluverðs þar sem ætíð eru bornar saman stærðir af sama tagi á milli mánaða.

https://gamli.frettatiminn.is/21/02/2022/husaleiga-haekkar-hratt-eltir-haekkanir-a-fasteignamarkadi/

https://gamli.frettatiminn.is/22/02/2022/arion-banki-haekkar-overdtryggda-vexti-225-milljarda-krona-ardur-til-hluthafa/

Umræða
Share12Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?