• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 3. október 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Farið að bæta í vind og hlýna

ritstjorn by ritstjorn
25. mars 2019
in Ferðaþjónusta
0
Share on FacebookShare on Twitter

Hugleiðingar veðurfræðings

Nú er farið að bæta í vind og hlýna. Með morgninum bætir talsvert í rigningu sunnan- og vestantil og hitinn fer víða í 5 til 8 stig. Búast má við mikilli leysingu um allt land og í þéttbýli reynir mikið á frárennsliskerfi og góð leið til að fyrirbyggja vatnstjón er að greiða leið vatns í niðurföll. Á Norðurlandi sem og sums staðar á Vestförðum og Austfjörðum er meiri snjór en syðra og þar geta myndast aðstæður til aukinnar snjóflóðahættu. Eins munu ár og lækir ryðja sig víðast hvar og við þannig aðstæður geta myndast klakastíflur. Sem sagt, árverkni getur borgað sig.
Spá gerð: 25.03.2019 06:40. Gildir til: 26.03.2019 00:00.

Veðurhorfur á landinu

Suðaustan 10-18 en allt að 25 á norðanverðu Snæfellsnesi. Hægari framan af degi á NA- og A-landi. Rigning eða talsverð rigning á S- og V-landi, en úrkomulítið NA-til. Hlýnandi, hiti 4 til 8 stig síðdegis. Snýst í SV 10-23 í kvöld, hvassast NV-lands. Skúrir en síðan él S- og V-lands. Bjartviðri á austanverðu landinu. SV 8-15 annað kvöld. Kólnar smám saman á morgun og víða frost annað kvöld. Spá var gerð: 25.03.2019 09:29. Gildir til: 27.03.2019 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Allhvöss sunnan- og suðvestanátt og rigning eða slydda, en úrkomulítið NA-til á landinu. Hiti 1 til 6 stig. Vestlægari með éljum og kólnar um kvöldið, fyrst V-lands.
Á fimmtudag:
Suðvestan, 8-15. Snjó- eða slydduél en úrkomulaust NA-til. Hiti um eða undir frostmarki.
Á föstudag:
Vestlæg eða breytileg átt og él nema á Austurlandi. Frost um mest allt land.
Á laugardag:
Hægviðri og stöku él. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á sunnudag:
Suðaustanátt og rigning eða slydda S- og V-lands en síðan él. Frostlaust úti við sjóinn.
Spá var gerð: 25.03.2019 08:54. Gildir til: 01.04.2019 12:00.

  • Afborganir hafa hækkað um 94%

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ung kona fannst látin við smábátahöfnina

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 750 ökumenn myndaðir við grunnskóla

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Hærri stýrivextir, hærri verðbólga!

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Spilling? Nei, nei, þetta er Ísland“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?