Hlýrra loft úr vestri um helgina með allt að 7 stiga hita og víða léttskýjað
Suðvestanáttin allsráðandi hjá okkur næstu daga. Yfirleitt frostlaust að deginum og ætti sólin að hafa nokkurn vegin undan að bræða þau él sem koma í dag, en í kvöld bætir í vind og élin verða kröftugri. Þá fer sólin vart að hafa undan og dálítil föl gæti myndast þar sem orðið er snjólétt, eins og allvíða á Suður- og Suðvesturlandi. Ekki eru líkur á að snjó taki upp annars staðar fyrr en um helgi þegar von er á hlýrra lofti úr vestri. Hins vegar er suðvestanáttin nánast þurr og allvíða léttskýjað norðaustanlands og á Austurlandi. Áfram svipuð dægursveifla í hitanum, en hiti gæti náð 4 til 5 stigum yfir daginn en um og undir frostmarki að næturlagi.
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 8-15 m/s með éljum, en þurrt að kalla A-lands. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum, en 1 til 5 stiga frost N- og A-lands í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Vestlæg átt, 8-15 m/s, hvassast A-lands, en lægir smám saman, fyrst V-til. Dálítil él V- og N-lands, en dregur úr þeim síðdegis. Léttskýjað SA-lands. Frost 0 til 5 stig, en um og yfir frostmarki við S-ströndina.
Á laugardag:
Vestan 5-13 og þykknar upp V-lands með dálítilli slyddu eða rigningu síðdegis, en lengst af bjart fyrir austan. Hlýnar í veðri.
Á sunnudag:
Vestan 8-15 og lítilsháttar rigning eða slydda, en þurrt A-lands. Hiti 2 til 7 stig, hlýjast A-lands.
Á mánudag:
Stíf vestanátt með rigningu, en þurrt að kalla A-lands. Áfram milt.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir kólnandi veður með éljum V-lands.