Falsfréttir, ósannindi og fyrirtækjadekur
Viðskiptafræðingurinn og fyrrverandi verðbréfamiðlari Guðmundur Franklín Jónsson kom víða við í pistli sínum í dag. Hann sagði m.a. mörg fyrirtæki ekki þurfa neina aðstoð frá ríkinu, þau hafa gengið það vel og greitt eigendum sínum milljarða í arð og hafa núna lokað eins og t.d. Bláa lónið. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga ekki alltaf rétt á sér því það er jafnvel verið að veita fyrirtækjum aðstoð sem þurfa ekkert á henni að halda. ,,Hví eiga skattborgarar að greiða laun vel stæðra fyrirtækja sem hafa greitt eigendum sínum milljarða í arð á hverju ári og eru vel stæð?“ Þá hefur hann bent á aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilunum í landinu.
Verðum að fá að heyra allan sannleikann hjá Almannavörnum
Guðmundur Franklín fjallar um það sem fram hefur komið hjá Almannavarnateyminu vegna Covid-19 faraldursins og bendir á atriði sem hann telur að betur mættu fara.
Falsfréttir að tala um heildarumfang
Aðgerðarpakki íslenskra stjórnvalda er sá minnsti í heimi segir hann eftir að hafa rýnt í tölurnar. ,,Ríkisstjórnin kynnti hann eins og hann væri sá sami og í nágrannalöndum okkar. Raunstærð 60 milljarðar, þar af 20 milljarðar sem voru þegar ákveðnir í vegaframkvæmdir. Það eru falsfréttir að tala um heildarumfang, álíka og að tala um milljarða veltu hjá gjaldkera í banka!“
https://www.facebook.com/gundifranklin/videos/492617748283039/?__xts__[0]=68.ARBoMLXiq2VrURELNJZpZjiWWUTzqJUprPQpT4unZb6G9Hqh29C8ylj18KMf3cCIfoA1ptd_OhNz68v6UQQLkdYUGXvw9rVxYG5nGA-S_wiw5C-wpGh6rMi5C569iYQMPJMZKslgG9okj35VEHtogJFxj1mw8YP15YmJDWTcL6QKPwwFmjfE5zWZRRKBLbmAlXJCRCRBM77-ajqHakBUseK3iDPVLLBf6QhPSXStHYeeXsx_GjJOQ0R1-xW2JCisX_S2IUMjNvYogIxlJf3aR3xhfGMJIwNr59_ER_obvUhwnd2zyOJcP9jSjMr0-wFxuHhAAzLtjvOyv0aSWKXKkkZ0Us_MA0Z-9MuIK6EesGu1I9nwEvP5B8Y&__tn__=k*F&tn-str=k*F
https://gamli.frettatiminn.is/frysta-a-afborganir-og-vexti-af-husnaedislanum-i-18-manudi-verdtrygginguna-burt-ofl/