• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Kvótakerfið hefur skilið eftir sig eyðileggingarslóð um allt land

1. gr. laga um stjórn fiskveiða: Markmið að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu og tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. mars 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Aflaheimildir voru sogaðar héðan í burtu og með skelfilegum afleiðingum

Rétt er að rifja upp þá bláköldu staðreynd hvernig fyrirkomulag í sjávarútvegsmálum hefur leikið hinar ýmsu byggðir þessa lands.
Vilhjálmur Birgisson skrifar

Það má klárlega líkja fyrirkomulaginu í sjávarútvegsmálum við skýstrók sem hefur skilið eftir sig eyðileggingarslóð vítt og breitt um hinar ýmsu sjávarbyggðir. Ég veit að þessi skýstrókur hefur farið víðar yfir en hann fór yfir okkur Akurnesinga árið 2017 þegar allar okkar aflaheimildir voru sogaðar héðan í burtu og með skelfilegum afleiðingum.

Til upplýsinga þá voru árið1998 voru 21% bæjarbúa sem höfðu atvinnu við veiðar og vinnslu á sjávarafurðum. Þetta myndi þýða að upp undir 1500 manns hefðu beina atvinnu af veiðum og vinnslu sjávarafurða í dag, Það líka rétt að geta að í skýrslu til Auðlindanefndar sem gerð var 1999 kom fram að á Akranesi voru 59 fiskiskip og 4 skuttogarar.

Það er einnig rétt að minna stjórnmálamenn sem bera ábyrgð á þessu fyrirkomulagi að árið 2004 voru um 400 manns sem höfðu atvinnu hjá Haraldi Böðvarssyni við veiðar og vinnslu og fyrirtækið greiddi rétt rúma 2 milljarða í laun, núvirt eru þetta um 4,6 milljarðar. Hugsið ykkur launatekjur sem nema 4,6 milljörðum eru farin úr okkar samfélagi.

Í dag er allt farið, allt, og setjum þessar hamfarir í eitthvað samhengi en þetta væri eins og 7600 manns myndu missa vinnuna í Reykjavík.
Tökum annað dæmi 4,6 milljarðar launatekjur sem HB greiddi miðað við núvirt er tekjufall vegna útsvarstekna sem nema rúmum 600 milljónum á ári. Rétt er að geta þess að útsvarstekjur Akraneskaupstaðar eru 4,5 milljarðar í dag og fasteignaskatturinn skilaði um 600 milljónum.

Tap sveitafélagsins vegna þess að allar aflaheimildir okkar voru rændar af okkur nema eins og öll fasteignagjöld Akraneskaupstaðar. Setjum þetta aftur í samhengi við Reykjavík miðað við höfðatölu þá er þetta eins og Reykjavík myndi missa útsvartekjur sem nema um 10 milljörðum á ári.

Já, þessi skýstrókur hefur svo sannarlega skilið eftir sig eyðileggingarslóð en ég minni stjórnmálamenn á að í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða, segir að markmið laga þessara sé að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Já, tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu og því þarf að skoða áhrifin sem þetta meingallaða fyrirkomulag í sjávarútvegi hefur haft á hinar dreifðu byggðir þessa lands!

Published on: September 18, 2021 kl. 11:41

Umræða
Share461Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?