Áhyggjur af meintri nekt Vigdísar Hauksdóttur í kosningamyndbandi
,,Vigdís Hauksdóttir lætur víkinga bera sig í kosningamyndbandi“
Glöggur aðili á Facebook gerði athugasemd við auglýsinguna sem að hefur ekki farið fram hjá neinum sem að hefur verið að fylgjast með fjölmiðlum að undanförnu og kosninga-barátttu Vigdísar Hauksdóttur fyrir Miðflokkinn í Reykjavík.
Hinn glöggi lesandi lýsti yfir áhyggjum sínum á því hvort að það gæti verið að víkingarnir hefðu verið að berhátta Vigdísi Hauksdóttur. Vísaði hinn glöggi lesandi þar til fyrirsagnar í fréttablaðinu, Stundinni sem að birti mynd af henni ásamt víkingunum sem að voru að bera hana. Fyrirsögnin var : ,,Vigdís Hauksdóttir lætur víkinga bera sig í kosningamyndbandi“
MYNDBANDIÐ UMTALAÐA
Umræða