Alvarleg líkamsárás í Kópavogi – gæsluvarðhald til 30. apríl
Karlmaður á fimmtugsaldri var í gærkvöld í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í 6 daga gæsluvarðhald, eða til 30. apríl, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mjög alvarlegri líkamsárás í Kópavogi seint í gærkvöld. Tveir aðrir karlar sem voru handteknir í tengslum við málið eru báðir lausir úr haldi lögreglu.
Mjög alvarleg líkamsárás í Breiðholti -gæsluvarðhald til 30. apríl
Þá var sautján ára piltur úrskurðaður í 6 daga gæsluvarðhald í gærkvöld, í Héraðsdómi Reykjavíkur, eða til 30. apríl, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mjög alvarlegri líkamsárás í Breiðholti um miðjan dag í gær.
Umræða