Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, furðar sig á því að ríkisfyrirtæki hafi breytt leigubílaaðstöðu í bænahús. Hægt er að lesa færslu hans hér að neðan:
Ég bara kemst ekki yfir þetta!
Þú ert búinn að vera leigubílstjóri í 25 ár og þjónusta farþega eftir bestu getu. Í besta falli hefurðu samtímis náð að skrapa saman nokkrum aurum í lífeyrissjóð í von um að fá eitthvað greitt úr honum þegar þar að kemur.
Allt í einu ertu lentur í samkeppni við menn hvaðan æfa að úr heiminum sem þurfa ekki að uppfylla sömu skilyrði og þú. Ganga fram eins og þeim sýnist og rukka jafnvel að vild.
Svo máttu ekki eini sinni fara inn í kaffiskúrinn þinn til að pissa af því að hofmóðugt ríkisfyrirtæki er búið að breyta honum í bænahús fyrir þá sem tóku af þér vinnuna.
Umræða