Fyrsta tölublað Sportveiðiblaðsins 2018 er að renna út úr prentvélunum í dag
Um er að ræða stórglæsilegt tölublað. Í blaðinu er tímamótaviðtal við Þórarinn Sigþórsson „Tóta tönn“ en hann hefur landað 20.511 löxum!
Einnig er viðtal við stórsöngvarann Kristján Jóhannsson og Jón Þór Ólason sem er nýkjörinn formaður SVFR. Við skoðum flugurnar hans Sveins Þórs Arnarsonar og ferðumst milli veiðistaða í Laxá í Dölum. Árni Matthíasson segir okkur frá Tungulæk og Haugurinn segir okkur frá „trendinu“ í laxaflugum fyrir sumarið.
Einnig er að finna í blaðinu fjölmargar veiðisögur og greinar þar sem flakkað er frá Elliðavatni til Suður-Ameríku með millilendingu í Finnmörku. Þetta er aðeins brot af því sem við segjum frá í þessu fyrsta tölublaði ársins.
Blaðið er eins og fyrr segir að skríða úr prentvélunum og verður blaðinu dreift til áskrifenda og á endusölustaði í næstu viku. Þetta er tölublað sem allir veiðimenn ættu að eignast! Hér er hægt að smella til að komast í áskrift