Hugleiðingar veðurfræðings
Vestlæg átt í dag, kaldi eða stinningskaldi. Skúrir fram eftir degi og frekar svalt í veðri, en hægari vindur og úrkomulítið í kvöld. Á morgun kemur ný lægð úr suðvestri. Heldur vaxandi sunnan- og suðvestanátt, víða 8-15 m/s seinnipartinn. Súld eða rigning, einkum suðvestan- og vestanlands. Hiti á bilinu 8 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi.
Aðfaranótt laugardags verður lægðin komin norðaustur yfir land. Þá gengur í nokkuð hvassa norðvestanátt með slyddu norðantil á landinu. Þegar kemur fram á daginn styttir upp og fer að lægja. Spá gerð: 25.05.2023 06:35. Gildir til: 26.05.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Vestan og suðvestan 8-15 m/s og allvíða skúrir í dag, en dregur úr vindi og úrkomu síðdegis. Hiti 6 til 14 stig, mildast suðaustantil. Gengur aftur í suðvestan 8-15 á morgun, en hægari á Vestfjörðum. Rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi. Spá gerð: 25.05.2023 03:47. Gildir til: 26.05.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Gengur í suðvestan 8-15 m/s með rigningu, víða talsverð úrkoma á vestanverðu landinu. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi.
Á laugardag:
Norðvestan og vestan 10-20 um morguninn, hvassast suðaustan- og austantil. Rigning eða slydda norðanlands, annars úrkomulítið. Styttir upp eftir hádegi og dregur úr vindi. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst.
Á sunnudag (hvítasunnudagur):
Suðvestanátt og rigning með köflum, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig.
Á mánudag (annar í hvítasunnu):
Suðlæg átt og rigning eða súld, en að mestu þurrt austanlands. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast eystra.
Á þriðjudag:
Vestanátt og smáskúrir vestantil. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast austast.
Á miðvikudag:
Suðvestanátt og bjart veður, en skýjað með köflum á vestanverðu landinu.
Spá gerð: 24.05.2023 20:14. Gildir til: 31.05.2023 12:00.