• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Sunnudagur, 24. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Stjórn Geðhjálpar skorar á borgaryfirvöld að hvika hvergi í smáhýsamáli

ritstjorn by ritstjorn
25. júní 2020
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Stjórn Geðhjálpar segir í  ályktun vegna deilna um staðsetningu smáhýsa fyrir einstaklinga sem eiga við vímuefnavanda og/eða geðrænar áskoranir að stríða, að ótti þeirra sem andmæla byggi á fáfræði og skilningsleysi. Umræðan minni um margt á umræðu liðins tíma gagnvart fólki með geðrænar áskoranir. Þuríður Harpa Sigðurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, tekur heils hugar undir áskorun Geðhjálpar.
Ályktun Geðhjálpar vegna smáhýsa við Skógarhlíð

Stjórn Landssamtakanna Geðhjálpar fagnar þeirri stefnu Reykjavíkurborgar að leggja skuli á hilluna úreltar hugmyndir í tengslum við heimilislaust fólk og taka þess í stað upp fordómalausari nálgun. Of lengi hefur það viðgengist í samfélaginu að mismuna fólki sem talið er „öðruvísi“ og fellur ekki að fyrirfram gefnum hugmyndum um það sem talið er „eðlilegt“. Stefna Reykjavíkurborgar byggir á „húsnæði fyrst“ nálguninni en kjarni hennar gengur út á að forsenda bættra lífsgæða og bata einstaklings sé að hafa þak yfir höfuðið. Sú stefna sem núverandi heilbrigðisráðherra hefur boðað með skaðaminnkandi úrræðum fellur vel að þessari nýju nálgun.
Á sama tíma hryggir það stjórn Geðhjálpar að sjá þá neikvæðu umræðu sem hefur skapast í tengslum við þau tvö smáhýsi sem fyrirhugað er að koma fyrir við Skógarhlíð. Ótti þeirra sem vilja ekki þessi smáhýsi eða sjá þau á öðrum stað byggir að okkar mati á fáfræði og skilningsleysi. Viðbrögðin núna minna um margt á umræðu liðins tíma gagnvart fólki með geðrænar áskoranir og fatlanir. Gömlu klisjurnar eru dregnar fram: Íbúðaverð mun lækka, börnin eru í hættu, heimilislaust fólk á ekkert erindi í hverfið, best að koma þeim fyrir út í sveit eða það séu of margir „skrýtnir“ við hina eða þessa götuna og betra væri að koma þessum einstaklingum fyrir í öðru hverfi. Viðbrögðin minna því miður á alltof algeng viðhorf í okkar samfélagi að fólk er almennt hlynnt hugmyndafræðinni en vill ekki sjá hana útfærða í „eigin bakgarði“. Það er sorglegt að sjá þessa umræðu blossa upp nær undantekningalaust ef koma á fyrir smáhýsi, sambýli, íbúða- og/eða meðferðarkjarna fyrir einstaklinga með vímuefnavanda eða geðrænar áskoranir.
Fordómar byggja á fáfræði. Besta leiðin til að uppræta þá er með samtali og fræðslu. Allar rannsóknir sýna að með því að veita einstaklingum, sem eiga við vímuefnavanda og/eða geðrænar áskoranir að stríða, húsaskjól og heimili dregur það úr vandanum. Við erum margbreytileg og undirstaða samfélagsins er umburðarlyndi fyrir náunganum. Stjórn Landssamtakanna Geðhjálpar skorar á borgaryfirvöld og stjórnvöld að hvika hvergi og leggja aukinn þunga á uppbyggingu úrræða og þjónustu við þá hópa sem samfélagið hefur allt of lengi mismunað vegna fordóma og skilningsleysis.
F.h. stjórnar Geðhjálpar,
Héðinn Unnsteinsson, formaður.

  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Ef þetta er rétt vantar um 20 milljarða í íslenskt hagkerfi á hverju ári“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Hamingjan er lífstíll sem fólk velur sér

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?