• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lífshættulegt er að stíga út á hraunið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Tilkynning frá lögreglu

Lífshættulegt er að stíga út á hraunið.  Farið því aldrei út á hraunið.  

Leið B er opin, hún er lengri (3-4 klst. fram og til baka) og nokkuð erfiðari en leið A með brattari brekku. Hún liggur að gígnum en þar er lítið að sjá eins og er þar sem lítil virkni er í gígnum og frá þessari hlið sést einungis á bakhlið gígsins.
Einnig er hægt að ganga inn Nátthaga að hraunflæðinu (leið C). Það er stutt og auðveld leið (1 klst. fram og til baka).
Frá Nátthaga má ganga áfram upp á Langahrygg og fá yfirsýn yfir gíg og gosvirkni síðustu mánaða. (1-2 klst. í viðbót
) 

Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða.  Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.   

Förum ekki með börn (6 ára og yngri) að gosstöðvunum ef hætta er á gasmengun.  Ekki er ráðlegt að börn dvelji lengur en 15 mínútur á stað þar sem loftmengun er yfir heilsuverndarmörkum.  Leitum upplýsinga um loftgæði á svæðinu áður en gengið er af stað.  

Spá veðurvaktar um veður og gasdreifngu í dag og á morgun:
Suðlæg átt 13-18 m/s, en hægt minnkandi seinnipartinn og í kvöld. Suðaustan 5-10 m/s á morgun. Gasmengun berst því einkum til norðurs, og gæti orðið vart við hana í byggð á norðanverðum Reykjanesskaga og í Reykjanesbæ og Vogum á morgun.

Bílastæði:

Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum á grasflötum við veginn en aðkoma að bílastæðum er bæði úr austri og vestri.

Gönguleiðir:

Gönguleiðir A og B eru stikaðar en B leiðin er sýnu erfiðust og lengst og hefur reynst mörgum erfið.  Leið C er stutt og auðveld leið.

Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og öðrum útivistarfatnaði.

Á safetravel.is eru upplýsingar um stöðuna hverju sinni uppfærðar reglulega yfir daginn.  Vakin er athygli á gönguleið að útsýnisstað hefur verið breytt vegna hraunflæðis.

 

Loftmengun:

Yfirborðsmengun getur verið í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F).  Mengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina.  Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi.

 

Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara:

  • Frá miðnætti og fram eftir degi eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum.
  • Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða.  Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.
  • Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.

 

Umræða
Share3Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?