• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fiskeldi tvöfaldast á næstu tveimur árum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. september 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

  • Útlit er fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu tveimur árum. Útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr árið 2021 eða sem nemur hátt í 3% af heildarútflutningi.
  • Líklegt er að mikill vöxtur haldi áfram í einhver ár eftir 2021.

Fiskeldi hefur vaxið mikið á undanförnum árum og verði vöxtur á næstu árum, einkum í laxeldi, jafnmikill og útlit er fyrir mun hann hafa teljandi áhrif í þjóðhagslegu samhengi. Það sem af er ári er vöxtur í útflutningsverðmæti milli ára um 60%. Útflutningsverðmæti fiskeldis verður líklega hátt í 20 ma.kr í ár eða sem nemur ríflega 1% af heildarútflutningi. Á þessu ári hafa samanlagðar framleiðsluheimildir í fiskeldi nær tvöfaldast og eru nú um 85 þús. tonn á ári miðað við útgefin starfsleyfi Umhverfisstofnunar. Það tekur rekstraraðila um tvö ár að komast í fulla framleiðslugetu.
Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum og hins vegar á Austfjörðum og skiptist tiltölulega jafnt milli þessara tveggja landsvæða.
Meðfylgjandi mynd sýnir spá um þróun í fiskeldi á næstu árum. Gangi áform eftir eru líkur á að samanlögð framleiðsla tvöfaldist til ársins 2021. Miðað við óbreytt afurðaverð þýðir þetta að útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr. árið 2021. Það nemur hátt í 3% af heildarútflutningi og slagar upp í verðmæti alls uppsjávarfisks í fyrra. Spáin er vitanlega háð óvissu um gang mála hjá einstökum framleiðendum.
Miðað við þær starfsleyfisumsóknir sem eru til skoðunar mun vöxtur fiskeldis líklega halda áfram eftir árið 2021. Það er þó takmarkað hversu mikinn fisk er hægt að framleiða í einstökum fjörðum og víða eru samanlagðar heimildir að nálgast burðarþol fjarðanna. Þrátt fyrir það er ekki útilokað að framleiðsluverðmætið geti vaxið um nokkra tugi milljarða til viðbótar á árunum eftir 2021.

 
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?