• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Fuglainflúensa greinist í villtum fuglum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fyrir skömmu fundust á annan tug stormmáfa og hettumáfa dauðir í fjöru við Blönduós. Sýni voru tekin og í þeim greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N5. Sama gerð skæðrar fuglainflúensu H5N5 greindist einnig í kvenkyns önd sem fannst dauð á Sauðárkróki í síðustu viku. Þetta staðfestir Tilraunastöð Hí í meinafræði á Keldum í gær.

Um er að ræða fyrstu staðfestu smitin þetta haustið. Þessi gerð fuglainflúensuveiru, HPAI H5N5, greindist einnig hérlendis síðasta vetur. Óljóst er hvort fuglarnir á Blönduósi hafi smitast af farfuglum eða hvort smit hafi leynst í villta íslenska fuglastofninum síðan í vor. Á þessu stigi máls er lítið vitað um útbreiðslu.

Áhættumatshópur mun endurmeta smithættu fyrir alifugla og aðra fugla í haldi í ljósi þessara greininga, en ljóst er að fuglaeigendur þurfa að tryggja öflugar smitvarnir við umgengni á sínum fuglahópum og vera vel vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum eða óeðlilegum dauða í þeim.

Matvælastofnun hvetur almenning til að tilkynna stofnuninni um veika og dauða fugla og villt spendýr sem það finnur. Það er gert með því að smella á „ábendingar og fyrirspurnir“ á forsíðu www.mast.is. Mikilvægt er að lýsa staðsetningu vel, helst með hnitum, og láta mynd fylgja með. Almenna reglan er að hræ af villtum fugli er látið liggja. Ef hræ er aftur á móti þannig staðsett að það þurfi að fjarlægja, til dæmis nálægt hýbýlum fólks þarf að gæta þess að einstaklings- og sóttvörnum og nota til verksins einnota hanska og veiruheldar grímur.

Veiðimenn eru hvattir til að sýna varkárni við veiðar og verkun villtra fugla. Ekki skal veiða fugla og nýta til matar sem haga sér óeðlilega eða eru sjáanlega veikir/slappir og gera Matvælastofnunina viðvart. Þó skal það tekið fram að heilbrigðir fuglar geta líka verið smitaðir af fuglainflúensu.

Ennfremur er bent á leiðbeiningar á upplýsingasíðu um fuglainflúensu um hvað skuli gera þegar veikir eða dauðir fuglar eða önnur villt dýr finnast.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    155 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Sturluð staðreynd

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Silja Bára rektor fær á sig vantrauststillögu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?