Hugleiðingar veðurfræðings
Noraustlæg átt í dag, 8-15 m/s, hvassast á Vestfjöðrum. Þó eitthvað hægari vindur austantil á landinu. Dálítil rigning eða slydda fyrir norðan og austan, en bjart yfir sunnan heiða.
Síðan lægir enn frekar á morgun, 3-10 m/s þá, en áfram dálítils slydda eða rigning. Hiti á bilinu 0 til 9 stig, hlýsast syðst. Seint á morgun hvessir svo úr austri við Suðurströndina þegar næsta lægð nálgast landið, 10-15 m/s þar þá.
Veðuryfirlit
Um 400 km S af landinu er víðáttumikil og hægfara 958 mb lægð, en yfir N-Grænlandi er 1018 mb hæð.
Veðurhorfur á landinu
Norðan og norðustan 8-15, hvassast á Vestfjörðum og dálítil rigning eða slydda, en bjartviðri sunnan heiða. Dálítið hægari á morgun, 3-10 m/s, en austan 10-15 við suðurströndina síðdegis. Dálítil slydda eða rigning víða um land. Hiti 1 til 9 stig, hlýjast syðst.
Spá gerð: 25.10.2020 05:15. Gildir til: 26.10.2020 00:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðaustan 10-18 m/s fram á morgun, en dregur síðan úr vindi, 5-10 eftir hádegi. Austlægari átt á morgun. Skýjað með köflum og þurrt. Hiti 3 til 8 stig.
Spá gerð: 25.10.2020 05:18. Gildir til: 26.10.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Norðan og norðaustan 3-10 m/s, en austan 10-15 við S-ströndina síðdegis. Dálítil slydda eða rigning víða um land og hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.
Á þriðjudag:
Austlæg átt, víða 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Skýjað að mestu, en lítilsháttar rigning S- og A-lands. Hiti 1 til 6 stig.
Á miðvikudag:
Ákveðnar austan- og suðaustanáttir með rigningu, en úrkomulítið NV-til. Hlýnandi veður.
Á fimmtudag:
Dálítið hægari austlæg eða suðaustlæg átt og frekari rigning á sunnan- og austanverðu landinu. Hiti breytist lítið.
Á föstudag og laugardag:
Útlit fyri suðlæga átt með vætu S- og V-lands, en annars úrkomulítið. Kólnar lítillega.
Spá gerð: 24.10.2020 19:37. Gildir til: 31.10.2020 12:00.