Í nótt hófst jarðskjálftahrina norðan við Grindavík og hafa rúmlega 700 jarðskjálftar mælst það sem af er degi. Stærsti skjálftinn mældist kl. 8:18 og var 4,5 að stærð og sá næststærsti varð kl. 5:35 og mældist 3,9 að stærð.
Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að þessir skjálftar hafa fundist víða á Reykjanesskaga og Höfuðborgarsvæðinu. Áfram er talsverð smáskjálftavirkni á svæðinu og ekki er útilokað að skjálftar af svipaðri stærð og í morgun eigi sér stað aftur. Síðast mældust skjálftar af svipaðri stærðargráðu á Reykjanesskaga í júlí á þessu ári.
Meðfylgjandi mynd sýnir staðsetningu tveggja stærstu skjálftana. Nánar má skoða yfirfarna jarðskjálfta í Skjálfta-Lísu.
Umræða