• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Frekir, tengdir og ríkir fram fyrir röð

Leigjendasamtökin: Sósíalistar í efsta sæti en Sjálfstæðisflokkurinn á botninum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. nóvember 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Leigjendasamtökin birtu í gær einkunnagjöf sína sem þau hafa gefið þeim flokkum sem eru í framboði í þingkosningunum. Þar sem formaður samtakanna er í framboði fyrir Sósíalista tóku þau fram að hann hefði ekki komið að einkunnagjöfinni heldur hefði hún verið á verksviði varaformanns og stjórnar. Formaðurinn hefur tekið sér hlé frá störfum.

Sósíalistaflokkurinn er í fyrsta sæti hjá Leigjendasamtökunum. Þau segja að leigjendur geti ekki fengið betri talsmann á þing en formann Leigjendasamtakanna. Þar við bætist að Sósíalistaflokkurinn styðji kröfuna um kostnaðartengingu leigu og endurskoðun á húsaleigukerfinu.

Flokkur fólksins er í öðru sæti og skilur lítið að hann og Sósíalistaflokkinn í efsta sæti. „Flokkur fólksins hefur lýst yfir stuðningi við viðmiðunarverð á leigu og breytingar á leigubótakerfinu.“

Næst koma Samfylkingin, Píratar, Vinstri græn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn.

Miðflokkurinn er næst neðstur þar sem hann hann hafi engar lausnir boðað og ekki minnst á leigjendur. Sjálfstæðisflokkurinn er á botninum og segja Leigjendasamtökin að flokkurinn telji leigjendur of lítinn hóp til að skipta máli. „Eru mótfallnir félagslegu húsnæði þrátt fyrir alþjóðasamninga og lágt hlutfall slíks húsnæðis hér miðað við Evrópu.“

Eftirfarandi lista og póst hafa Leigjendasamtökin sent á alla félaga samtakanna og dreift á samfélagsmiðlum eftir að samtökin tóku fundi með öllum framboðum í aðdraganda kosninga undanfarnar vikur. Markmið okkar með þeim fundum var einfalt og gegnsætt. Við setjum kostnaðartengingu leigu, mikilvægi félagslegrar húsnæðisuppbyggingu og viðurkenningu á því að húsnæði er mannréttindi á oddinn fyrir þessar kosningar. Fundum okkar var ætlað að fá afstöðu framboðanna til þessara þátta og gefa þeim svo eftirfarandi einkunnagjöf til að félagsmenn okkar jafnt og almenningur geti fengið skýrari sýn á afstöðu stjórnmálaflokkanna til hagsmuna leigjenda og þar með afstöðu til húsnæðismála í heild. Það er ljóst að áframhaldandi stjórnleysi á leigumarkaði, þar sem um fjórðungur almennings býr, hefur gríðarleg áhrif á húsnæðismarkaðinn í heild vegna gróðasækni og ágang fjárfesta. Við vonumst til þess að sem flestir fjölmiðlar sjái mikilvægi þess að miðla þessum niðurstöðum okkar til almennings, enda ljóst að húsnæðismálin eru einna veigamest í hugum kjósenda eins og vera ber.

Einkunnagjöf Leigjendasamtakanna á stefnu flokkanna í málefnum leigjenda!

📣 Formaður Leigjendasamtakanna hefur stigið tímabundið til hliðar í ljósi framboðs síns fyrir Sósíalistaflokkinn. Varaformaður samtakanna tók því við sem starfandi formaður og leiddi samtölin við flokkana. Þessi einkunnagjöf er unnin af starfandi formanni og stjórn Leigjendasamtakanna með það að markmiði að upplýsa þá leigjendur sem við náum til um stefnu flokkanna í okkar málum. 🏠

🥇 1. sæti – Sósíalistaflokkur Íslands
📝 Við viljum vera hrein og bein með það að formaður Leigjendasamtakanna er í framboði fyrir Sósíalista, og við þekkjum hann auðvitað vel. Við teljum að leigjendur geti ekki fengið betri baráttumann en hann inn á þing.
🏠 Flokkurinn styður kröfur Leigjendasamtakanna um kostnaðartengingu leigu og endurskoðun á húsaleigubótakerfinu.
🤝 Það sem skilur Sósíalista frá öðrum er vilji þeirra til að byggja á félagslegum grunni – að taka utan um okkar fátækasta fólk sem hefur verið á vergangi frá hruninu.
🏘️ Ætla að koma böndum á Airbnb og stuðla að nýtingu tóms íbúðarhúsnæðis.
✅ Við sjáum enga ástæðu til að efast um framkvæmdarvilja Sósíalista og trúum að þeir muni sannarlega berjast fyrir leigjendur og fasteignaeigendur – enda hafa þeir ekki enn komist til valda og því aldrei svikið sín loforð.

🥈 2. sæti – Flokkur fólksins
🏠 Það er ekki mikið sem skilur á milli efstu tveggja flokka hjá okkur. Flokkur fólksins hefur lýst yfir stuðningi við viðmiðunarverð á leigu og breytingar á leigubótakerfinu.
🏡 Þau hafa lagt til nýtt húsnæðislánakerfi sem svipar til gamla verkamannabústaðakerfisins, sem okkur líst vel á.
👥 Við berum mikið traust til Ragnars Þórs, sem hefur leitt húsnæðisstefnu flokksins.
✅ Alveg eins og með Sósíalista, sjáum við enga ástæðu til að efast um vilja Flokks fólksins til verka – við höfum dæmi um störf Ragnars Þórs í þágu húsnæðismarkaðarins á Íslandi.

🥉 3. sæti – Samfylkingin
🤝 Við hittum húsnæðishóp Samfylkingarinnar í ágúst og náðum að koma á framfæri ákveðnum málum, eins og einingarhúsunum.
🏛️ Sú stefna kom fram þegar fulltrúi okkar benti á að Alþingi bæri lokaábyrgð og ætti að geta sett lög, flutt inn einingarhús og reist á stuttum tíma til að bregðast við bráðavanda.
🏘️ Ætla að koma böndum á Airbnb og stuðla að nýtingu tóms íbúðarhúsnæðis.
🏭 Vilja breyta vannýttu iðnaðarhúsnæði í góðar íbúðir.
⚠️ Eru sammála okkur um skaðsemi fjárfesta á húsnæðismarkaði.
🚧 Skrefin sem þau vilja taka eru ekki nógu öflug; að segjast vilja taka á aðkomu fjárfesta en taka ekki á því að 1 af hverjum 4 heimilum er undir sjálfsvald leigusala er stefna sem er dæmd til að mistakast.
💡 Jóhann Páll hefur lýst yfir vilja til að skoða kostnaðartengingu leigu.
🤔 Þó við teljum trúverðugleika þeirra nokkuð góðan, getum við ekki horft framhjá aðgerðarleysi í húsnæðismálum í Reykjavík, þar sem húsnæðisverð hefur tífaldast frá aldamótum. Ríkisstjórn Íslands ber þó höfuðábyrgð á þessari þróun.

4️⃣ 4. sæti – Píratar
🔄 Nálægt Samfylkingunni í flestum málum; hafa tekið upp hugmyndir eftir fund okkar með þeim.
🏘️ Ætla að koma böndum á Airbnb og stuðla að nýtingu tóms íbúðarhúsnæðis.
💡 Vilja skoða kostnaðartengingu leigu, en ekki er einhugur meðal frambjóðenda.
🤔 Vilja laga málin í ríkisstjórn en hafa staðið sig illa í borginni, eins og aðrir flokkar. Húsnæðisverð hefur hækkað tvöfalt á við laun undir þeirra stjórn.

5️⃣ 5. sæti – Vinstri græn (VG)
🏠 Vilja stefna að félagslegri uppbyggingu, sem sárvantar á íslenskan leigumarkað.
💡 Hugmyndir þeirra eru jákvæðar en skorta metnað miðað við efstu flokkana.
🏘️ Vilja byggja 1.500 félagslegar íbúðir, sem er aðeins dropi í hafið miðað við þörfina.
🏠 Vilja setja þrengri skorður á Airbnb, en ekki eins skýrt og efstu flokkarnir.
❌ Tala ekki fyrir tómthússkatti eða öðrum afgerandi lausnum.
🩹 Tillögur eins og sérstakar vaxtabætur eru góðar en aðeins plástrar.
⏸️ Vilja leigubremsu strax, sem við höfum gagnrýnt þar sem hún myndi frysta núverandi óréttlæti á leigumarkaði.
🤝 Hafa tekið vel í hugmyndir okkar en vilja ekki taka upp kostnaðartengingu leigu.
📄 Vísa í grænbók um húsnæðismál, sem lofar mörgu en skortir sértækar aðgerðir og samþykkir stöðnuð eða minnkandi framlög til húsnæðismála næstu árin.

6️⃣ 6. sæti – Viðreisn
🌐 Sjá nauðsyn þess að uppfylla alþjóðasamninga um félagsleg réttindi.
📋 Vilji til að regluvæða leigumarkaðinn betur.
🚫 Eru alfarið á móti verðstýringu á leigumarkaði, þrátt fyrir sýnda skaðsemi óheftrar græðgi.
🤔 Teljum líklegt að þeir standi gegn verðstýringu, en vonum að þeir bæti hag þeirra verst stöddu. Úrræðaleysi í Reykjavík stendur þeim fyrir þrifum.

7️⃣ 7. sæti – Framsóknarflokkurinn
💪 Þrátt fyrir langa stjórn húsnæðismála, trúum við að vilji til góðra verka sé enn til staðar. Ágúst Bjarni Garðarsson hefur sýnt mikinn vilja og reynslu í samtali okkar.
❓ Stefna þeirra í húsnæðismálum er óljós; virðast halda að „allt sé að koma“ og sjá ekki gríðarlegan vanda á húsnæðismarkaðnum.
💡 Ágúst Bjarni vill skoða kostnaðartengingu leigu, sem færir þeim 7. sætið.

8️⃣ 8. sæti – Miðflokkurinn
🤝 Hittum Bergþór Ólafsson og áttum gott samtal.
❌ Eru á móti núverandi leiguliðastefnu, sem hefur skilað 1 af hverjum 4 íbúðum á leigumarkað.
❓ Engar lausnir í boði og ekki minnst á leigjendur.

🚫 Botnsætið – Sjálfstæðisflokkur Íslands
❗ Telja að leigjendur séu of lítill hópur til að skipta máli.
💰 Sjá ekki að stefna þeirra hafi leitt til stærsta kjósendahóps landsins – 52.288 leigjenda.
🏚️ Eru mótfallnir félagslegu húsnæði þrátt fyrir alþjóðasamninga og lágt hlutfall slíks húsnæðis hér miðað við Evrópu.

Við vonum að þessi samantekt hjálpi leigjendum að taka upplýsta ákvörðun um hvaða flokka þeir vilja kjósa í komandi kosningum. 🗳️
📢 Við hvetjum bæði kjósendur til að spyrja sína flokka út í afstöðu þeirra og framboðin sjálf til að tjá sig hér fyrir neðan. 💬

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    148 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?