• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Hvar er tuga milljarða arfur auðugustu konu Íslandssögunnar?

ritstjorn by ritstjorn
25. desember 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Guðmundur Franklín Jónsson
„Hún elskaði Ísland en ég veit ekki hvort hún elskaði Íslendinga,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson um Sonju de Zorrilla, eina auðugustu konu Íslandssögunnar. Fjallað er um ævi Sonju og góðgerðarsjóð hennar sem hvarf í nýjum útvarpsþáttum hjá ríkisútvarpinu. Fram kemur í fyrsta þætti að arfurinn muni vera um 24 milljarðar á núvirði en lítið hefur frést af honum undanfarna áratugi.

,,Sonja Wendel Benjamínsson de Zorrilla fæddist í Reykjavík 1916 Hún bjó víðs vegar um Evrópu áður en hún settist að í New York á fimmta áratugnum þar sem hún hóf að fjárfesta og varð ein ríkasta kona Íslandssögunnar. Minningarsjóður var stofnaður að hennar ósk, sem ætlað var að styðja við börn í námi og mæta kostnaði við heilbrigðisþjónustu. En fáir virðast hafa notið góðs af.

Sonja Wendel Benjamínsson de Zorrilla

Guðmundur Franklín Jónsson, athafnamaður, kynntist Sonju þegar hann var að stíga sín fyrstu skref sem verðbréfamiðlari á Wall Street. Hann hringdi í hana dag einn árið 1990 og bauð henni að kaupa hlutabréf. Hún tók strax vel í það.

„Hún tók mér svo forkunnarvel og það var svo gaman að hitta hana. Henni þótti þetta svo merkilegt, að það væri Íslendingur byrjaður að vinna þarna. Hún tók mér opnum örmum og var alveg yndisleg.“  Sonja keypti hlutabréf af honum og við það upphófst áralangt samband hennar og Guðmundar.“

Í nýjum þáttum Rásar 1, í umsjón Sæunnar Gísladóttur og Katrínar Lilju Jónsdóttur, er fjallað um ævi Sonju og reynt að komast til botns í því hvað varð um sjóð hennar.“ Segir í kynningu á fjögurra þátta röð um Sonju og ævi hennar og þá segir jafnframt.

,,Auður Sonju var umtalsverður við andlát hennar. Hann byggði á fasteignum, yfirgripsmiklu málverkasafni og fjölda hluta- og skuldabréfa. Ósk Sonju við andlát hennar var að þessi auður rynni til bágstaddra barna, selja átti eignir hennar til að fjármagna þennan sjóð. Íslenskir blaðamenn hafa reynt að komast til botns í ráðgátunni um sjóð Sonju en koma jafnan að lokuðum dyrum. „Hún deyr í þeirri trú að peningarnir hennar séu að fara að gera eitthvað gagn, sem ég veit ekki hvort þeir eru að gera,“ segir Reynir Traustason, ritari ævisögu Sonju.“

Fjallað er um ævi Sonju og góðgerðarsjóð hennar

https://www.storytel.com/is/is/books/sonja-l%C3%ADf-og-leyndard%C3%B3mar-sonju-w-benjam%C3%ADnsson-de-zorrilla-1008299 

Discussion about this post

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Árni Johnsen er látinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Viltu fá útborgað í evrum?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?