Færðu eigendum sínum rúmlega 10,8 milljónir króna á mann
Báðir vinningshafarnir sem skiptu með sér tvöfalda Lottópottinum um síðustu helgi hafa gefið sig fram við Íslenska getspá. Annar miðinn var keyptur í Snælandi í Núpalind, en hinn var keyptur í Lottó-appinu og færðu þeir eigendum sínum rúmlega 10,8 milljónir króna á mann.
Vinningshafinn sem keypti miðann sinn í Lottó-appinu sagðist hafa haft það svo sterkt á tilfinningunni upp á síðkastið að nú væri hans tími að koma til að vinna þann stóra. Og viti menn það svo sannarlega reyndist rétt, appið skilaði vinning upp á 10,8 milljónir sem kemur sér að sjálfsögðu vel.
Hinn vinningsmiðann á fjölskyldukona á höfuðborgarsvæðinu en hún átti leið í Snæland í Núpalind. Meðferðis var eldri Lottómiði sem enn átti eftir að yfirfara, á miðanum reyndist lítill vinningur sem hún lét ganga upp í kaup á nýjum miða. Það var aldeilis góð ákvörðun því nýji miðinn skilaði henni vinningi upp á nærri því 11 skattfrjálsum milljónum.
Íslensk getspá óskar báðum vinningshöfunum innilega til hamingju og þakkar þeim og öllum öðrum lottóspilurum fyrir stuðninginn við eignaraðila Getspár sem eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Öryrkjabandalag Íslands og Ungmennafélag Íslands, sá stuðningur skiptir miklu máli.