Gamli vegurinn er lífshættulegur
Ódrjúgsháls er í 160 metra hæð yfir sjó

Landvernd hefur kært framkvæmdaleyfi vegna vegar um Teigsskóg til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála. Stjórn samtakanna telur að leyfið, sem sveitastjórn Reykhólahrepps veitti Vegagerðinni vegna veglagningar í Teigsskógi, brjóti í bága við náttúruverndarlög og skipulagslög. Vegagerð þessi hefur verið mjög umdeild og hafa íbúar á Vestfjörðum mótmælt kröftuglega á undanförnum árum, þeirri töf sem vegagerðin hefur orðið fyrir vegna mótmæla landeigenda. Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti umsókn Vegagerðarinnar um leyfi þann 25. febrúar síðastliðinn með fyrirvörum.
Ódrjúgsháls er í 160 metra hæð yfir sjó
Ljóst er að mun verr hefið getað farið og jafnvel getað endað með alvarlegu slysi ef bíllinn hefði farið fram af, en flutningabíllinn vegur salt á brúninni og afturdekk hans eru á lofti, það mátti alls engu muna að bíllinn steyptist fram af.
Bifreiðar sem að hafa þurft að fara yfir Ódrjúgsháls s.l. áratugi hafa margir hverjir lent í miklum háska og hefur leiðin m.a. verið vegatálmi fyrir samgöngur vestur á firði. Deilur hafa staðið í yfir áratug um framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit í Austur-Barðarstrandarsýslu. Um er að ræða rúmlega 15 kílómetra kafla Vestfjarðavegar, sem Vegagerðin vill leggja um Teigsskóg með svokallaðri leið B frá Þorskafirði og vestur fyrir Gufufjörð.
Breytingar á vegakerfinu hafa strandað á deilum vegna veglagningar um Teigskóg en jarðeigendur þar eru á móti því að vegur verði lagður um skóginn sem að samanstendur af ca. meters háum birkihríslum að meðaltali. Eins og eru um alla Barðastrandasýlsu og er ekki skógur í þeirri mynd að þar séu hávaxin tré sem að þurfi að fella til að ryðja leið um „skóginn.“
Nærri 90% Vestfirðinga styðja veg um Teigsskóg
Hvorki meira né minna en 88,3% svarenda í könnun Gallup voru fylgjandi tillögu Vegagerðar ríkisins um lagningu nýs vegar í Gufudalssveit.
Svonefnda Þ-H leið, sem á að liggja að hluta til um Teigsskóg í Þorskafirði, en 6,4% eru andvígir (5,2% svara hvorki né). En eigendur jarðanna standa enn í vegi fyrir lagningu vegarins.
,,Stjórn Landverndar telur að framkvæmdir í Teigsskógi brjóti gegn lögum um náttúruvernd og skipulagsmál. Stjórn Landverndar telur að framkvæmdaleyfi sem sveitastjórn Reykhólahrepps veitti Vegagerðinni vegna veglagningar í Teigsskógi brjóti í bága bæði við náttúruverndarlög og skipulagslög. Þá telja samtökin að stjórnarskrárákvæði um sjálfstæði sveitarfélaga hafi ekki verið virt.“
Framkvæmdin brýtur gegn náttúruverndarlögum
Það er því óhjákvæmilegt að Landvernd sem umhverfisverndarsamtök að krefjist stöðvunar framkvæmda og ógildingu framkvæmdaleyfis vegna form- og efnisannmarka.
Stjórn Landverndar telur að lagfæringar á vegum í Reykhólahreppi séu nauðsynlegar. Hins vegar hefur ekki verið sýnt fram á brýna nauðsyn þess að velja ÞH-leiðina, Teigsskógarleið, umfram aðrar leiðir sem hafa verið metnar.
Teigsskógur er óslitinn frá fjöru til fjalls
Teigsskógur er stærsta samfellda skóglendi á Vestfjörðum. Hann er óslitinn frá fjöru og upp í hlíðar og myndar einstakt samspil með leirum og grunnsævi. Báðar þessar vistgerðir, birkiskógurinn og leirurnar njóta verndar Náttúruverndarlaga. Þá er svæðið allt er verndað með sérlögum um Breiðafjörð og áhrifasvæði framkvæmdanna eru á náttúruminjaskrá.
Leirur og birkiskógar verndaðir með lögum
Sveitastjórn hefur með veitingu framkvæmdaleyfis brotið gegn náttúruverndarlögum þar sem ekki hefur verið sýnt fram á brýna nauðsyn þess að raska birkiskóginum og leirunum til að bæta samgöngur. Aðrar leiðir til að bæta samgöngur hafa verið metnar með minni umhverfisáhrif og hefðu því verðið betri kostur.
Stjórn Landverndar telur því að sveitastjórnin og Vegagerðin hafi ekki farið eftir niðurstöðu valkostamats. Fjárhagslegir hagsmunir einir virðast hafa ráðið leiðarvali. Slíkt er ekki réttætanlegt. Umhverfismat væri í raun óþarft ef eingöngu þyrfti að horfa til kostnaðar við ákvörðun um val á vegstæði.
Bæta þarf vegasamgöngur
Þá telur stjórn Landverndar að í ákvörðunarferlinu hafi verið brotið gegn 78. grein stjórnarskrár um sjálfræði sveitarfélaga og að gegið hafi verið gegn skipulagslögum. Eins og fram kemur í bókunum sveitastjórnarfulltrúa Reykhólahrepps beitti Vegagerðin sveitastjórnina þvingunum til þess að fá ÞH-leið, Teigskógarleið, samþykkta.
Vinna þarf í sátt við umhverfið
Kæra Landverndar er í viðhengi. Landvernd vísar einnig á umfjöllun á bls. 24-25 í síðustu ársskýrslu sinni um Teigsskóg, sjá hér.