Hugleiðingar veðurfræðings
Áfram verður svalt í veðri og víða næturfrost. Lengst af norðlæg vindátt og milda loftið heldur sig langt suður í hafi næstu daga hið minnsta. Yfirleitt fylgir þessu lítil úrkoma og getur hún fallið hvort heldur sem er í fljótandi eða föstu formi. Þar sem frost er allmennt lítið í jörðu stoppar úrkoman stutt við á yfirborðinu ef hún fellur sem snjór. Spá gerð: 26.04.2023 06:39. Gildir til: 27.04.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðan og norðaustan 3-10 m/s og stöku él eða skúrir austanlands og suðvestantil, en annars allvíða bjartviðri. Dálítil rigning eða slydda við suðvesturströndina í dag, stöku él austanlands, en annars léttskýjað.
Svipað veður á morgun, en úrkomuminna, einkum um landið suðvestanvert.
Hiti 0 til 7 stig yfir hádaginn, mildast vestanlands, en víða næturfrost, kaldast í innsveitum norðaustantil.
Spá gerð: 26.04.2023 04:01. Gildir til: 27.04.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðlæg átt, 3-10 m/s og skúrir eða dálítil él á austanverðu landinu og sums staðar sunnan- og vestanlands, en annars bjart með köflum. Víða vægt frost, en hiti að 6 stigum suðvestantil að deginum.
Á föstudag:
Norðan 5-13 m/s, vægt frost og úrkomulítið á norðanverðu landinu. Bjartviðri sunnan heiða og hiti að 5 stigum yfir daginn.
Á laugardag og sunnudag:
Norðanátt og dálítil él á norðanverðu landinu, en annars bjart með köflum. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku él, en yfirleitt bjart veður sunnan- og vestantil. Áfram svalt í veðri. Spá gerð: 25.04.2023 20:00. Gildir til: 02.05.2023 12:00.