![](https://gamli.frettatiminn.is/wp-content/uploads/2019/05/lögr11.jpg)
Úrskurðaður í nokkra daga gæsluvarðhald
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot karlmanns á þrítugsaldri gegn tveimur börnum í Hafnarfirði. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í nokkra daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness, en Landsréttur felldi síðan úrskurðinn úr gildi.
Húsleit var framkvæmd á heimili mannsins og lagt hefur verið hald á gögn í þágu málsins. Skýrslutökur vegna barnanna fóru fram í Barnahúsi. Rannsókn málsins miðar vel.
Umræða