• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 3. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Ánægjulegt að geta fært gleðifregnir vegna faraldursins

ritstjorn by ritstjorn
26. júní 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Það er ánægjulegt að geta fært gleðifregnir að heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tillögu sóttvarnarlæknis að aflétta öllum samkomutakmörkunum innanlands. Áfram verða í gildi óbreyttar ráðstafanir á landamærum nema gagnvart þeim sem eru fullbólusettir og með tveggja vikna gamalt bólusetningarskírteini.
Þegar horft er um öxl yfir síðustu sextán mánuði koma stolt og þakklæti fyrst og síðast upp í hugann. Ég er stolt af því að tilheyra samfélagi þar sem samtakamátturinn og umhyggjan fyrir samferðafólkinu er jafn mikil og raun ber vitni. Þar sem fólk sýnir í verki að það er tilbúið að færa fórnir í þágu annarra og leggja mikið á sig lengi með velferð allra hinna í huga.Sá árangur sem hefur náðst hingað til í baráttunni við faraldurinn er fyrst og fremst íslenskum almenningi að þakka.
Undanfarnir sextán mánuðir hafa verið erfiðir. En þeir hafa líka verið lærdómsríkir – einmitt vegna þess að þeir hafa minnt á að samfélag er ekki aðeins orð heldur okkar aðferð við að vera til ásamt öðrum. Hvernig við náum árangri þegar við stöndum saman og hver og einn leggur sitt af mörkum. Við höfum öll gert okkar til að halda samfélaginu gangandi þrátt fyrir heimsfaraldur og fordæmalausar aðstæður.
Stundum er rétt að staldra aðeins við og hugsa hlýlega hvert til annars og muna að við getum öll verið þakklát fyrir samfélagið sem við eigum og fyrir hvert annað. Og vonandi getum við öll notið sumarsins framundan um leið og við höldum áfram að passa okkur sjálf en ekki síður passa upp á okkur öll. Þó að ráðstöfunum sé aflétt þá skulum við halda því áfram.

Discussion about this post

  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bjartviðri og allt að 20 stiga hiti

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?