Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Ögmundur Haukur Knútsson, Fiskistofustjóri, undirrituðu samkomulag um samvinnu og samstarf í tengslum við fiskveiðieftirlit í vikunni.
Landhelgisgæsla Íslands og Fiskistofa hafa um langt skeið haft með sér samvinnu um fiskveiðieftirlit.
Samkomulag þetta byggir því á árangursríku samstarfi stofnananna og vilja beggja aðila til að efla samstarf sín á milli í tengslum við eftirlit með fiskveiðum. Nú er verið að formfesta þessa samvinnu, tryggja upplýsingamiðlun á milli stofnananna og samhæfa viðbrögð, markmið og áherslur í fiskveiðieftirliti.
Georg og Ögmundur undirrita samkomulagið.
Umræða