• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 12. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fiskeldi að Laxamýri við Húsavík

Lífeyrissparnaður landsmanna lækkaði á árinu

Ársreikningabók lífeyrissjóða 2022

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. júní 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Seðlabanki Íslands sendi nýlega frá sér samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða og vörsluaðila séreignarsparnaðar fyrir árið 2022. Þar kemur fram að lífeyriseignir landsmanna hafi lækkað um 87 ma.kr. á árinu og að eignir íslenska lífeyrissjóðakerfisins í formi samtryggingar lífeyrissjóða, séreignar lífeyrissjóða og séreignar annarra vörsluaðila séreignarsparnaður séu nú um 186% af vergri landsframleiðslu. 

Hrein raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða var -11,6% að meðaltali á árinu og kom í kjölfar þriggja ára þar sem lífeyrissjóðir skiluðu raunávöxtun langt umfram viðmiðunarávöxtun skuldbindinga, sem er 3,5%. Hafa ber í huga að lífeyrissparnaður er langtímasparnaður og síðastliðin 10 ár hefur hrein raunávöxtun samtryggingardeilda lífeyrissjóða verið 4,7% að meðaltali.

Á árinu 2022 störfuðu 21 lífeyrissjóður í 25 samtryggingardeildum og af þeim buðu 13 sjóðir upp á séreignarsparnað í 43 deildum.

Eignir lífeyrissjóða við árslok 2022 voru um 6.620 milljarðar kr. Eignir samtryggingardeilda voru 5.919 milljarðar kr. og drógust saman um 1,9% milli ára og séreignarsparnaður í vörslu sjóðanna var 701 milljarður kr. og dróst saman um 0,7% milli ára. Í heild drógust lífeyriseignir landsmanna því saman á árinu 2022.

Sjóðstreymi, lífeyrisgreiðslur og iðgjöld

Iðgjöld í lífeyrissjóði námu 340 milljörðum kr. á árinu og jukust um 14% frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóðum námu rúmlega 229 milljörðum kr. og skiptust upp í eftirfarandi flokka: Ellilífeyrir samtryggingar 163 ma.kr, örorkulífeyrir 28 ma.kr og maka- og barnalífeyrir 17 ma.kr. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeildum lífeyrissjóða námu 21 ma.kr á árinu, þar af voru 6 ma.kr. greiddir beint inn á húsnæðislán. Í heildina jukust lífeyrisgreiðslur um 11% frá fyrra ári.

Undanfarin ár hefur verið lögð aukin áhersla á gagnsæi í kostnaði við rekstur sjóðanna. Bein og óbein fjárfestingargjöld eru stór útgjaldaliður lífeyrissjóða og námu þau 0,36% sem hlutfall af heildareignum en skrifstofu- og stjórnunarkostnaður var 0,15%. Hlutdeild erlendra eigna var 37% af heildareignum í lok árs 2022 sem er svipað og árið á undan.

Tryggingafræðilegt mat og skuldbindingar sjóðanna

Tryggingafræðileg staða sjóðanna lækkaði milli ára og var neikvæð um 5,6% hjá þeim sjóðum sem ekki njóta ábyrgðar launagreiðenda. Þeir þættir sem höfðu neikvæð áhrif á stöðuna voru: breytingar á réttindatöflum sjóðanna vegna hækkandi lífaldurs, neikvæð ávöxtun og mikil verðbólga á árinu.

Sjóðirnir hafa undanfarin tvö ár unnið að útfærslu á uppfærðum töflum fyrir dánar- og lífslíkur. Þetta kemur í kjölfar þess að fjármála- og efnahagsráðuneytið birti nýjar töflur um lífslíkur þar sem gert er ráð fyrir áframhaldandi hækkun lífaldurs. Með uppfærslum á réttindatöflum sjóðanna ætti að nást betra jafnvægi milli eigna og skuldbindinga til framtíðar.

Samantekt frá Seðlabanka Íslands

Á Lífeyrismál.is má sjá helstu hagtölur lífeyrissjóða undir Tölur og gögn.

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sigurður ákærður fyrir morð á dóttur sinni

    Sigurður Fannar í héraðsdómi – réð dóttur sinni bana

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Þrefalt verð á bílatryggingum á Íslandi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Ekki hægt að nota greiðslukort á Suðurlandi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Hópur vopnaðra manna mætti heim til lögreglumanns

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?