• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 31. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Góðærið svokallaða lét aldrei sjá sig á landsbyggðinni

Þegar hið smáa verður risa­stórt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. júlí 2025
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Það er óneitanlega stundum undarlegt að fylgjast með vandræðagangi stjórnsýslunnar við að leysa úr litlum verkefnum. Þar má nefna nauðsynlegar úrbætur á flugleiðsögubúnaði á Akureyrarflugvelli með sáralitlum tilkostnaði sem myndu stórbæta rekstraröryggi flugvallarins. Annað mál sem kostar ekkert en væri mikill ávinningur fyrir sjávarþorp hringinn í kringum landið er að tryggja strandveiðar í 48 daga. Tólf veiðidaga á mánuði frá og með maímánuði til og með ágústmánaðar.

Sigurjón Þórðarson, alþingismaður skrifar

Eðlilegast væri að veiðiheimildir strandveiðibáta væru fyrir utan alla potta enda magnið lítið miðað við þá gríðarlegu óvissu sem blasir við í mælingum á stærð fiskistofna. Mæling á þorskstofninum árið 2017 var endurmetin fjórum árum síðar og var stofninn þá sagður 240 þúsund tonnum minni en fyrri mæling gaf til kynna. Hafa ber í huga að skekkjan er mun meiri en heildarþorskveiði allra fiskiskipa verður á þessu ári og örugglega mun meiri en allur afli strandveiðibáta frá upphafi.

Strandveiðar eiga að vera í forgangi

Íslensk stjórnvöld gáfu þau fyrirheit í framhaldi af áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um að kerfið bryti í bága við jafnræðis- og atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar að strandveiðarnar yrðu fyrsta skrefið til að lagfæra kerfið. Þannig að þau 5,3 prósent sem nú er haldið fyrir utan beina úthlutun yrðu notuð til beinna byggðaaðgerða og nýliðunar.

Það hefur farið fram hjá fáum að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa einhverra hluta vegna beitt sér að alefli gegn strandveiðum. Þar á bæ telja menn það heilaga skyldu sína að koma í veg fyrir strandveiðar. Færri vita að það skortir verulega á að stóru sjávarútvegsfyrirtækin skili veiðiheimildum í þorskígildum talið inn í 5,3 prósenta byggðapottinn eins og þeim ber sbr. 8. laga um stjórn fiskveiða. Þar munar nokkrum þúsundum tonna árlega í þorskígildum talið.

SFS kastar steini úr glerhúsi

SFS er því að kasta steini úr glerhúsi þegar kvartað er til umboðsmanns Alþingis vegna meintra brota á jafnræði þegar kemur að strandveiðum. Sérstaklega vegna þess að fyrirtæki innan SFS sækja sjálf æ harðar í byggðapottana, bæði í beina úthlutun og óbeina. Víða byggir úthlutun á byggðkvóta á vinnsluskyldu þar sem eina vinnslan á svæðinu er oftar en ekki í eigu stórútgerðar. Ef útgerðarmaður í Fjallabyggð til dæmis fær úthlutað einu tonni af byggðakvóta þarf hann að útvega önnur tvö tonn í mótframlagi, með þeim skilyrðum að landa að minnsta kosti tveimur tonnum á Dalvík. Vinnslan á Dalvík greiðir fyrir bæði tonnin verð sem er um 25 prósentum lægra en markaðsverð.

Ákveðinn hluti af 5,3 prósenta pottinum hefur smátt og smátt verið að færast þaðan til stórútgerðarinnar, í nafni svo kallaðara skel -og rækjubóta sem ekki eiga lengur rétt á sér. Þessar svo kölluðu bætur eru í raun að miklu leyti orðnar hluti af veiðiheimildum stærri útgerða og ættu því ekki að dragast frá heimildum í 5,3 prósenta pottinum og þrengja þannig svigrúm stjórnvalda til byggðaaðgerða.

Ýmsir þættir ættu að teljast strandveiðum til hagsbóta. Þar má nefna lítið brottkast, áræðanleg viktun, umhverfisvæn veiðarfæri, minna um að fiskur kremjist eða sleppi lífvana í gegnum möskva. Á strandveiðum er einnig verið að veiða staðbundinn fisk á grunnslóð sem annars nýtist ekki.

Það er samstaða í ríkisstjórn um að efla strandveiðar. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mun leiða stefnumótun þar að lútandi á næstu misserum. Það er mikilvægt að allir aðilar nálgist þetta verkefni með jákvæðum og lausnarmiðuðum hætti.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • Rústaði hjónabandinu, missti forræðið og reyndi sjálfsvíg

    50 deilingar
    Share 40 Tweet 4
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    836 deilingar
    Share 334 Tweet 209
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Á meðan heimilum landsins blæðir eru hreinar vaxtatekjur Landsbankans 44,1 milljarður

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?