• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

60 milljarða sektir á matvöruverslanir – Samkeppniseftirlitið staðfestir sektirnar

Matvara og fleira hækkar á ný

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. september 2025
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Eftir að hafa staðið í stað síðustu tvo mánuði mældust þónokkrar hækkanir á matvöruverði í september, eða 0,5% samkvæmt Hagstofunni.

Er mælingin í samræmi við mælingu verðlagseftirlits ASÍ en samkvæmt nýjustu tölum eftirlitsins hefur verðlag hækkað um 0,46% frá meðalverði ágústmánaðar. Á ársgrundvelli hefur verð á mat- og drykkjarvöru hækkað um 6,2% eða töluvert umfram almennar verðlagshækkanir.

Verðhækkanir á matvöru í september skýrast af nokkrum þáttum, en þó vega hækkanir á mjólkurvörum sem rekja má til ákvörðunar verðlagsnefndar búvara þungt ásamt hækkunum á svínakjöti, nautakjöti og sælgæti.

Verðhækkanir á svínakjöti og sælgæti í september

Úr verðathugunum Verðlagseftirlitsins má sjá dæmi um umtalsverðar hækkanir á svínakjöti. Alls mældist vegin verðhækkun á svínakjöti um 4,7% milli mánaða sem er mesta hækkun í einstökum vöruflokki frá ágúst. Meðal verðhækkana á svínakjöti má nefna rifjasteik frá Stjörnugrís, sem kostaði 1999kr í Krónunni í fyrra en kostar nú 2370kr (18,5% árshækkun). Grísaskanki frá Stjörnugrís kostaði 849kr í Bónus í fyrra en kostar nú 998kr (17,5% árshækkun).

Enn mælast verðhækkanir á sælgæti. Verðlagseftirlitið undanfarin misseri vakið athygli á miklum verðhækkunum á súkkulaði á Íslandi, bæði innlendu og erlendu. Þessar hækkanir hafa að hluta verið raktar til verðhækkana á kakói og sykri. Nýjustu mælingar gefa til kynna að verð á sælgæti haldi áfram að hækka. Þetta er nokkuð óvænt í ljósi þess að verð á bæði kakói og sykri hefur lækkað umtalsvert síðustu misseri ásamt hagfelldri þróun á gengi krónunnar.

Til dæmis hækkar Nóa lakkrískurl í Bónus úr 429 í 485kr milli mánaða (37% árshækkun), 300gr af konsúm súkkulaði í Bónus og Krónunni úr 829-830 í 929-930kr (34% árshækkun), og Góu súkkulaðirúsínur hækka um 10% í báðum verslunum sömuleiðis (13-18% árshækkun).

Ólíkt súkkulaði ætti verð á ávaxtahlaupi að vera óháð verðþróun á kakói. Engu að síður hefur verð á hlaupi hækkað umtalsvert frá innlendum framleiðendum. Til dæmis hækkar Góu bangsahlaup í Bónus um 6% milli mánaða (13% árshækkun). Sama vara hefur í Krónunni hækkað um 17% á einu ári. Nóa trítlar hafa frá september í fyrra hækkað um 19-23% í Bónus og Krónunni. Athygli vekur að slíkar hækkanir sjást ekki í vörum frá erlendum framleiðendum en sem dæmi hefur verð á Haribo-sælgæti hefur staðið í stað undanfarið ár og verð á Trolli og Sour Patch hlaupi hefur lækkað.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    154 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Sturluð staðreynd

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Silja Bára rektor fær á sig vantrauststillögu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?