Klukan 01:35 í nótt var tilkynnt um umferðarslys / útafakstur í Heiðmörk. Fjórir farþegar á aldrinum frá 16 til 21 árs voru í bifreiðinni og var þeim ekið af lögreglu og sjúkrabifreið á bráðadeild til aðhlynningar, ekki er vitað um meiðsl að svo stöddu.
Foreldrar voru látnir vita og mættu þeir á bráðadeild. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og fíkniefna og ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum. Var ökumaðurinn vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
Umræða