Við sögðum frá ljóðabók Valdimars Tómassonar, Vetrarland, í júlí í sumar. Velgengni bókarinnar hefur verið mjög góð og hefur hún verið á metsölulista síðan þá.
Nú er svo komið að erfitt er að fá bókina þar sem að hún er víða uppseld. Valdimar skýrir frá því á facebooksíðu sinni: ,,Vetrarland er nú uppselt hjá útgefanda og ólíklegt er að kverið verði endurprentað. En víst er að þokkalegar birgðar leynast í verslunum Eymundsson og MM Laugavegi 18.“ Þeir sem eru að leita að góðri ljóðabók í jólapakkann, geta e.t.v. orðið sér úti um eitt af síðustu eintökunum, ef að einhver eru ennþá til.
Viðtalið þann 7. júlí 2018
Vetrarland eftir Valdimar Tómasson trónir enn á toppi metsölulista ljóðabóka í Eymundsson. Bók þessi er allrar athygli virði og er skáldið vel að velgengninni komið en ljóðabækur hafa oft orðið að víkja fyrir annarskonar bókmenntum, t.d. í jólabókaflóðinu. Það er því gleðilegt þegar að vel gengur en það má segja að hin nýja ljóðabók hafi nánast verið límd í fyrsta sæti metsölulista Eymundssonar frá útgáfu hennar yfir vinsælustu ljóðabækurnar.
Við spjölluðum í rólegheitunum við Valda um bókina á dögunum eins og áður hefur verið getið og var hann að vonum ánægður með viðtökur lesenda sinna. Enda hefur ljóðabókin verið í fyrsta sæti yfir vinsælustu ljóðabækur á Íslandi frá því að hún kom út.
Valdimar er greinilega hógvær maður og það vita allir sem að hann þekkja, og gerir ekki mikið úr velgengninni, dregur frekar úr, en er ánægður með að fólk meti vel það sem að hann setur á blað. JPV prentar bókina og hún fæst í verslunum um allt land.
Ljóðabók Valdimars Tómassonar, Vetrarland er fjórða ljóðabók hans. Áður hefur hann gefið út hinar vinsælu ljóðabækur, Dvalið við dauðalindir, Enn sefur vatnið og Sonnettugeigur.
Hér flytur ljóðskáldið ljóð úr bók sinni og þökkum Valda fyrir að þiggja boð um heimsókn og kaffispjall þar sem að víða var komið við.
Bók skáldsins hefur selst vel eins og áður segir og útgáfan þarf örugglega að standa að endurprentun eftir þörfum.
En gefum skáldinu orðið :
https://gamli.frettatiminn.is/2018/02/24/valdimar-tomasson-ljodskald/