Kvótakerfið var upphaflega búið til til vegna þess að þannig ættum við að geta aukið fiskinn okkar í sjónum og gætum með því aukið veiðar og tekjur landsmanna verulega þar sem þá væri hægt að veiða um 500.000 tonn þegar tilraunin heppnaðist.
En einhvernvegin sá einhver að svona gjafakvótakerfi gæti komið sér vel fyrir fáa og látið þá fitna ár eftir ár og næstu áratugi og meira segja langt fram í aldir alda. Þetta er jú nefnilega hagstjónartæki í dag sem stýrir því að sumir verða alltaf fátækir og borga afskriftir þeirra ríku.
Með reglulegu millibili er afskrifaðar skuldir hjá þessum stóru fyrirtækjum sem enda á að láta fátæka fólkið tapa sínum eignum eins og gerðist í hruninu en það sýndi best hvernig farið er að.
Fólk tók líf sitt og fjölskyldur sundruðust
Fátæka fólkið mátti missa sig og bera eigur sínar út á götu og alla fjölskylduna líka. Á meðan voru allar skudir afskrifaðar af feita ríka kallinum eins og alltaf á Íslandi. Og viti menn það var enginn þörf á því, enda keypti feiti ríki kallinn öll heimilin sem litlu börnin kölluðu heimilin sín.
Fólk tók líf sitt og fjölskyldur sundruðust. Allt er þetta að verða gleymt í dag. En samt stöndum við á sama stað og þá en allir eru samt að reyna að halda í vonina og aðrir loka augunum fyrir því að landið okkar verður ekki eins eftir Covid. Áfram helv.. kvótakerfið sem er eyðingarafl og vinnur fyrir fáa þegar ljóst er að hægt er að skapa velsæld og jöfnuð í okkar gjöfula landi.
En bæði skortir þor og vilja til að svo meigi verða og svo þarf auðvitað leyfi frá feita ríka kallinum líka. Hættum að lúta lögum sem standast ekki mannréttindi, atvinnufrelsi og samkeppnislög á einn né annan hátt. Enda er þetta kerfi orðið að skopmynd og ómarktækt með öllu.
https://gamli.frettatiminn.is/26/01/2021/aetla-ad-roa-an-kvota-og-hundsa-onytt-kvotakerfi/