7.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

50% feðra beittir andlegu ofbeldi og 30% líkamlegu og fjárhagslegu ofbeldi

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

70%  FEÐRA  UPPLIFA  MISMUNUM  Á  GRUNDVELLI  KYNS

Ný rannsókn á stöðu feðra og barna í Danmörku leiðir í ljós að um 70% feðra upplifir mismunun á grundvelli kyns.

Yfir 50% hafa verið beittir andlegu ofbeldi eins og það er skilgreint í refsilöggjöfinni. 

Um 30% verið beittir fjárhagslegu ofbeldi og

29% hafa verið beittir líkamlegu ofbeldi af barnsmóður sinni. Þetta kemur fram á síðunni foreldrajafnrétti, þar segir jafnframt:

,,Flestir segjast ekki hafa tilkynnt ofbeldið af ótta við að missa þá sambandið við börnin eða að reiði barnsmóður kæmi hart niður á börnunum.

Yfir 80% þátttakenda voru í sambúð með barnsmóður sinni eða deildu forsjá og umgengni 50/50 eða 40/60.“ Segir á síðunni en þar er lögð áhersla á velferð barna eftir skilnað sbr. hér að neðan:

Mikilvægt fyrir börn að eiga sama rétt til beggja foreldra

Fjöldi barna á tvö jafn mikilvæg heimili og tvo jafn mikilvæga foreldra. Er til skiptis hjá þeim viku og viku. Þetta fyrirkomulag er það sem reynist börnum best eftir skilnað foreldra.

Flestir foreldrar sem slíta samvistir kjósa að fara sameiginlega með forsjá þeirra og axla jafna ábyrgð á uppeldi þeirra og framfærslu.
Þetta fólk er að gera allt sem það getur til að skapa bestu skilyrði fyrir börnin sín en „kerfið“ gerir þeim það mjög erfitt.

Frumvarp dómsmálaráðherra gagnslaust

Dómsmálaráðherra kynnti árið 2020 frumvarp um að foreldrum „væri heimilt“ að skrá börn í tvöfalda búsetu. Það frumvarp gerir ekkert í raun til að breyta núverandi ástandi. Ekki neitt.

Algengast er að það sé faðir sem er í þessari stöðu sem hér er lýst. Er með börnin sín aðra hverja viku, er þó ekki skráður foreldri í „kerfinu“, nýtur einskis stuðnings s.s. barnabóta og er jafnvel krafinn um meðlag með börnum sem þó eru jafn mikið hjá honum og móður. Stjórnvöld (dómsmálaráherra eða alþingi) þurfa að breyta lögum þannig að barn sem býr á tveimur heimilum hafi sama rétt á þeim báðum og að báðir foreldrar hafi sama rétt og stuðning til að axla ábyrgð á uppeldi og framfærslu barnsins.