Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumanns sem stofnað verður 1. janúar 2027 við sameiningu núverandi níu sýslumannsembætta.
Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var nýverið samþykkt á Alþingi og markar mikilvægt skref í einföldun og eflingu opinberrar þjónustu. Núverandi níu sýslumannsembætti verða sameinuð í eitt öflugt embætti sýslumanns og ríkisstofnunum því fækkað um 5%. Með nýju embætti verður unnið að því að samræma þjónustu, auka skilvirkni og tryggja jafnt aðgengi almennings að þjónustu sýslumanna um land allt.
Leitað er að framsýnum leiðtoga með skýra sýn og getu til að leiða sameininguna, tryggja samfellu í lögbundinni starfsemi og móta sameinað embætti á grunni reynslu, þekkingar og styrkleika núverandi embætta, með það að markmiði m.a. að fjölga störfum á landsbyggðinni og stuðla að jöfnu aðgengi að opinberri þjónustu
Hjá sýslumanni munu starfa um 250 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum víða um land. Ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.
Hlutverk og ábyrgð
Sýslumaður fer með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði eftir því sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Auk lögbundinna verkefna annast sýslumaður framkvæmd verkefna fyrir aðrar ríkisstofnanir eða stjórnvöld samkvæmt samningi.
Sýslumaður fer með yfirstjórn embættisins og ber ábyrgð á stefnumótun, skipulagi, mannauðsmálum og rekstri. Þá gegnir embættið mikilvægu hlutverki í framkvæmd stjórnsýslu ríkisins í héraði og sinnir fjölbreyttum verkefnum samkvæmt lögum og samningum við önnur stjórnvöld.
Stofnun hins nýja embættis er eitt stærsta breytingaverkefnið á sviði stjórnsýslu á undanförnum árum. Sýslumaður mun leiða undirbúning og innleiðingu sameiningarinnar í nánu samstarfi við ráðuneytið, með áherslu á fagmennsku, stöðugleika og traust.
Dómsmálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn og skipað verður í embættið þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk. og skal senda umsókn á starf@dmr.is. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.
Nánari upplýsingar um starfið og hæfniskröfur er að finna á Starfatorgi.


