• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Mikilvægt að þing og þjóð standi saman gegn þeirri einangrunarstefnu sem nú ryður sér til rúms í Evrópu og á Íslandi''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í morgun opnunarávarp á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norðurlanda í fókus og utanríkisráðuneytisins sem ber titilinn „Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?“. Stjórnmálamenn, sérfræðingar, fræðimenn og áhugamenn um alþjóðamál flytja þar erindi og taka þátt í fjölbreyttum umræðum um alþjóðasamvinnu.
Í ræðu sinni sagði Guðlaugur Þór mikilvægt að þing og þjóð stæðu saman gegn þeirri einangrunarstefnu sem nú ryður sér til rúms í Evrópu og á Íslandi. „Alþjóðleg samvinna og virk hagsmunagæsla er undirstaða þess að lífskjör og tækifæri hérlendis geti áfram orðið með því sem best sem gerist í heiminum,“ sagði Guðlaugur Þór. „Þar er samstarfið innan Evrópska efnahagssvæðisins lykilþáttur, sem og vestræn samvinna í þágu öryggis. Síðast en ekki síst felur þátttaka í alþjóðlegri samvinnu í sér viðurkenningu erlendra ríkja á því að Ísland sé frjálst og fullvalda ríki.“

Fyrsta málstofa dagsins fjallaði um áhrif ungs fólks á stjórnmál. Bergur Ebbi Benediktsson flutti erindi og sagði unga fólkið standa frammi fyrir stórum áskorunum sem ekki væri hægt að takast á við á grundvelli stjórnmálahefðar 20. aldarinnar. Najmo Fiyasko, nemi í FÁ og YouTube áhrifavaldur, sagði sögu sína en hún kom til Íslands sem flóttamaður frá Sómalíu og hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna í heimalandinu. Í kjölfarið fylgdu pallborðsumræður um áhrif ungs fólks þar sem sérstaklega var rætt um þær leiðir sem ungt fólk hefur til að hafa áhrif í nútíma lýðræðissamfélagi.
Nokkrir sérfræðingar og sendiherrar úr utanríkisþjónustunni eru meðal þátttakenda. Davíð Logi Sigurðsson, deildarstjóri mannréttindadeildar utanríkisráðuneytisins, flutti erindi um setu Íslands í mannréttindaráðinu. Eftir hádegið flytja Hjálmar W. Hannesson, fyrrverandi sendiherra, og Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu, erindi í málstofu um Ísland, Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið á 21. öldinni, sem Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins stýrir. Jóhanna Jónsdóttir, sérfræðingur, tekur þátt í pallborðsumræðum um Brexit og Bryndís Kjartansdóttir, fulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins, tekur þátt í pallborðsumræðum um hernaðarumsvif á Norðurslóðum. Þá tekur Ragnar Þorvarðarson, sérfræðingur, þátt í pallborðsumræðum um samskipti Íslands og Asíu, en Ragnar stýrði einnig málstofu um áskoranir framtíðar og áhrif unga fólksins.
Streymi má viðburðinum má finna á vef Alþjóðamálastofnunar, en dagskrá stendur yfir til klukkan 17.15.
Ræðu utanríkisráðherra má finna hér.
https://www.fti.is/2019/04/09/hreinlegra-ad-ganga-bara-i-esb-heldur-en-ad-vera-med-halfkak/
https://www.fti.is/2019/04/15/sjalfstaedisflokkurinn-logar-i-illdeildum-vegna-orkupakka-3/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?